Menntamál - 01.08.1966, Page 106
192
MENNTAMÁL
nokkur vafi leikur á um, hvernig túlka skuli. Ekki komust
aðilar að neinni niðurstöðu urn þessi atriði, og hefur sam-
bandsstjórn nú vísað þeim til stjórnar B.S.R.B. og Kjara-
ráðs.
Y firvinnumálið.
Á síðasta fulltrúaþingi stóðu málin þannig í hinu svo-
nefnda yfirvinnumáli, að tilboð hafði komið frá ríkisstjórn-
inni um að greiða kennurum mismuninn á greiddu kaupi
og réttu yfirvinnukaupi fyrir skólaárin 1960—61 og 1961—
62 með 7% vöxtum frá 1. júllí 1961 til ársloka 1964, auk
málskostnaðar. Þingið samþykkti að gera gagntilboð, þar
sem krafizt var greiðslu fyrir allt árið 1960. Þessari kröfu
var hafnað af ríkisstjórninni. Á sameiginlegum fundi stjórna
L.S.F.K. og S.Í.B. hiinn 16. nóv. 1964 var málið tekið fyrir,
og að vandlega athuguðu máli samþykkt að ganga að fyrr-
nefndu tilboði ríkisstjórnarinnar. Jafnframt var ákveðið að
halda eftir 5% af greiðslum til kennara vegna óhjákvæmi-
legs kostnaðar við málið.
Mikið verk var að reikna út og skrifa alla reikninga kenn-
aranna. Tilnefndi stjórn S.Í.B. Ársæl Sigurðsson til að ann-
ast verk þetta af hálfu barnakennara, stjórn L.S.F.K. til-
nefndi Jónas Eysteinsson af sinni hálfu.
Það kom í ljós, þegar reikna átti út þá tíma, sem skóla-
stjórar höfðu kennt umfram sína kennsluskyldu, að fjár-
málaráðherra féllst ekki á að greiða þessa tíma. Stendur
mál þetta enn þá fast. Benedikt Sigurjónsson, sem var lög-
fræðingur kennarasamtakanna, lét af störfum fyrir þau á
sl. ári, þar sem hann var skipaður hæstaréttardómari. Við
málinu hefur nú tekið Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl.
Margt hefur orðið til að tefja þetta mál. Lögfræðingur
ríkisstjórnarinnar, Tómas Jónsson, lézt áður en málinu
lyki. Við tók þá Páll Líndal. Þessi skipti á málflytjendum
hafa valdið því, að málið hefur verið óvenju þungt í vöf-