Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 3
01 J)ún heitir Kristín Olafsdóttir, hávaxin, dökkhærð
jmmÍaiiÆ stúlka, 21 árs að aldri og er Austurbæingur í
húð og hár. Þegar hún var á þeim aldri, sem
mörg ykkar eru nú, stundaði hún nám í Austur-
bæjarbarnaskólanum. Eftir að hafa lokið námi þar fór hún
í Kvennaskólann í Reykjavík. En hugur Kristínar stefnir
hærra — stefnir stöðugt hærra. Kristín iagði siðan leið
sína í leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur, þar sem hún
— kannizt þið þezt við hana sem stúlkuna, er segir frá
svo mörgu skemmtilegu í „Stundinni okkar“ í sjónvarpinu.
Síðasta kvöld ágústmánaðar skrapp ég heim til Kristínar,
þar sem hún býr með vinkonum sínum í Hlíðunum. Mig
langaði nefnilega að kynna hana betur íyrir ykkur. Eftir
að við höfðum komið okkur vel fyrir í íbúðinni hjá henni
— og ég búinn að taka upp penna og blöð — hófust um-
ræðurnar. Þær snerust fyrst um leiklist.
Ungmenni á uppleiú
lauk leiklistarnáminu eftir þrjú ár — eða 1969. Það hefur
löngum verið draumur hennar að tjá sig á leiksviðinu —
og það hefur hún einmitt verið að gera nú, í popleiknum
Óla.
En hana Kristínu Ólafsdóttur hafið þið eflaust þekkt af
fleiru en leiklistinni. Ef nefna á þjóðlagasöngkonu á ís-
landi, kemur nafn hennar fyrst upp í hugann. — Hún hefur
löngum veitt mörgum ánægjustundir með þjóðlagasöng
sínum — og margir viljað kalla hana Joan Baez Islands.
Eins og þið kannski flest vitið, þá er Joan þessi Baez
bandarísk stúlka og þekktust þjóðlagasöngkvenna í þessum
undarlega heimi okkar. . . Og Kristín Ólafsdóttir er þekkt
fyrir fleira — ef til vill — og örugglega þau yngstu ykkar
— Hvenær fékkstu fyrsta hlutverkið þitt, Kristín, á leik-
sviðinu?
— Mig minnir að ég hafi þá verið átta ára gömul, lék
hlutverk í smá-leikþætti, sem sýndur var á jólatrésskemmt-
un í skólanum. Þegar ég svo var í Kvennaskólanum, var ég
tvo vetur í „Leikhúsi æskunnar", sem Æskulýðsráð var
með. Það var áhugamannafélag, sem er nú ekki lengur til.
— Svo hefur þú starfað hjá Leikfélagi Reykjavíkur?
— Já, en aðeins sem hvíslari. I vor tók ég jú reyndar
að mér hlutverk í popleiknum Óla, sem var fyrst sýndur í
júní í sumar. Þaö er „Litla leikfélagið", sem að honum
stendur, en það leikfélag er skipað eldri nemendum úr
leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur.
Viðtal
mánaðarins
er
við
Kristínu
Olafsdóttur