Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 15

Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 15
 HHHSMH^BHnðiHnl^^^HHNHMÍÍiMaMMtÍHHBHHH^I Þegar Tarzan var liorfinn, fór Jane að velta því fyrir sér, hvert hann væri að fara. Skyldi liann ætla að skilja hana eina eftir þarna í skóginum? Hún horfði skelkuð í kringum sig. Þarna, eða þá þarna, gat ljón verið að læðast að henni! Henni fannst hún jafnvel heyra urr ein- hvers villidýrs, sem jtó lét ekki sjá sig. Þvílíkur munur síðan liann fór! Hún heyrði snögglega lágt þrusk á bak við sig. Hún stökk á fætur með ópi, viðbúin að mæta dauða sínum í líki ljóns eða mannapa. En þarna var þá Tarzan kontinn með fangið fullt af ávöxtum. Jane riðaði og hefði dottið, ef Tarzan hefði ekki sleppt ávöxtunum og gripið hana í fang sér. Hún var dauðhrædd og titraði á beinunum. Tarzan apabróðir strauk hár hennar og reyndi að sefa hana, eins og Kala hafði gert við hann, þegar hann var lítill drengur og hafði orðið hræddur við Sabor, ljón- ynjuna, eða Histah, snákinn. Einu sinni þrýsti hann vör- unttm að enni hennar, og hún hreyfði sig ekki, heldur lokaði augunum og andvarpaði. Loks ýtti hún brosandi Tarzan hægt frá sér. Hún benti á ávextina á jörðinni. Því næst settist hún á trumbu apanna, því að hún var orðin svöng. Tarzan tíndi í skyndi sarnan ávextina og lagði þá við fætur hennar. Svo settist hann við hlið hennar á trumbuna og skar ávextina sttnd- ttr með hníf sínttm. Þau snæddu þegjandi um stund og gutu við og við hornauga hvort til annars í laumi, þar til Jane gat ekki stillt sig lengttr og fór að hlæja. Tarzan tók undir. „Ég vildi óska, að þú gætir talað ensku,“ mælti stúlkan. Tarzan hristi höfuðið, en úr augum hans skein inni- leg þrá. Jane reyndi þá bæði frönsku og þýzku, en fór svo að hlæja að sjálfri sér, því að þýzkan hennar var víst ekki sem bezt. ,,[æja, þú skilur víst þýzkuna mína álíka vel og þeir i Berlín!“ Að jjessu „samtali" loknu hvarf Tarzan inn í skóginn um stund, en kom brátt aftur með fangið fullt af blöðum og greinum. Úr þessu gerði hann dálítið skýli handa Jane. Hann benti henni að leggjast til hvílu inni í því. Þá var það, að Jane tók eftir nistinu, sem ltékk í festi um háls Tarzans. Hún benti á það og tók hann það þá af sér og rétti henni það. Hún sá fljótt, að þetta var mjög dýrt og vel smíðað nisti, alsett inngreyptum gimsteinum. Hún sá einnig, að hægt var að opna það, og studdi á fjöðrina. Þegar nistið opnaðist, kont í ljós lítil mynd af mjög fríðri konu og önnur af manni, sem mjög líktist Tarzan, þótt svipurinn væri að sumtt leyti frábrugðinn. Tarzan starði á þetta steinhissa. Honurn hafði aldrei dottið í hug, að hægt væri að opna nistið. Hann skoðaði myndirnar með augljósri undrun og ánægju. Allt í einu Dýrlingurinn Kvikmyndaleikarinn ltoger Moore, sem hefur kvatt að eilífu einkaspæjarann og ævin- týramanninn Simon Templar, er ásamt starfsbróður sínum Tony Curtis tckinn til við nýj- an myndaflokk, „The Friendly Persuaders," en það verða 26 þættir, 1 klst. hver. Þegar lit- ið er yfir frægð þá, sem Rog- er Moore vann sér með Dýr- lingnum, sem sýndur var í rúmlega 90 löndum, er ástæða til að binda nokkrar vonir við þennan nýja myndaflokk. Enda þótt Roger Moore liafi kvatt Simon Templar, er ekki svo auðvelt fyrir fólk að gleyma sjónvarpsdýrlingnum. Það bar til nýlega, að Roger Moore fákk bréf frá aldraðri konu á elliheimili, sem bað Roger Moore með fjölskyldu hann að koma sér strax il hjálpar, þvi það væri flokkur manna að ofsækja sig. Nokkrir þættir af þessum nýja myndaflokki verða tekn- ir í Kaupmannahöfn, og eru Danir ekki lítið upp með sér af þeim sökum. Heilbrigður maður með eðli- lega matarlyst borðar á 4 mán- uðum þyngd sína — með öðr- um orðum eins mörg kg og hann vegur. var sem Tarzan rankaði við sér. Upp úr örvamæli sínum tók hann mynd, vafða inn í laufblöð. Hann benli Jane á myndina, sem var af manni nauðalíkum myndinni í nistinu. Stúlkan benti fyrst á myndina, síðan á myndina í nistinu og síðan á hann sjálfan, en Tarzan bara hristi höfuðið með ráðleysisglampa í augum. Hann valði mynd- ina aftur inn í laufblöðin og stakk henni síðan í örvamæli sinn, en nistið setti hann á brjóst Jane með því að smeygja festinni yfir höfuð hennar. Jane vildi í fyrstu ekki taka' við þessari dýrmætu gjöf og ætlaði að skila henni aftur, en þá tók Tarzan um hendur hennar og gerði henni skiljanlegt, að hann bæði hana að eiga nistið. Hún brosti, kyssti nistið og hneigði sig íyrir honum. Tarzan gat sér þess réttilega til, að þetta ætti að merkja það, að henni þætti vænt unt þessa gjöf. Þau brostu bæði. Um kvöldið lagðisl Jane til hvílu inni í litla byrginu, en Tarzan apabróðir lagðist endilangur fyrir inngang- inn. Áður hafði hann fengið henni hníf sinn í hendur. Innan stundar sváfu þau bæði svefni hinna réttlátu í dum-dum-rjóðri mannapanna. ^—■1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.