Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1970, Page 18

Æskan - 01.10.1970, Page 18
Norska þjóðminjasafnið Víkingaskipin Pjóðminjasafnið norska (Norsk folkemuseum) var opn- að árið 1894 í tveimur litlum stofum í Osló. En árið 1902 var það flutt út í Byggðey og þá jafnframt stofnað útisafn (friluftsmuseum) með líku sniði og þjóð- minjasafnið sænska, sem komið hafði verið fyrir á Skans- inum í Stokkhólmi. Safnað var gömlum húsum víðs vegar að, sem sýndu byggingarstíl þjóðarinnar frá fornu fari, og þeim komið fyrir á stóru svæði í fögru umhverfi. Jafnframt var safnað og komið fyrir, á réttum stöðum, hvers konar húsgögnum, munum og tækjum, sem þjóðin hefur notað öldum saman. Má því í rauninni rekja þarna menningar- sögu og atvinnuþróun þjóðarinnar yfirleitt. í safninu eru nú meira en 85 000 munir og 143 gömul hús. Hér er því um feikilegt safn að ræða, langstærsta og merkasta þjóðminjasafn Norðmanna, sem langan tíma þarf til að skoða að nokkru gagni. Byggðarsafnið kunna á Maí- haugi, Litlahamri, gengur næst þessu, hvað stærð og frægð snertir. Stofnandi Byggðeyjarsafnsins og sá maður, sem átti mestan þátt í að móta það og gera það að þeim þjóðarauði og því þjóðarstolti, sem það nú er, hét Hans Jacob Aall. Hann var forstjóri safnsins frá upphafi og til dauðadags árið 1946. Þann tíma, sem við dvöldum í Osló, fórum við oft út í Byggðey og skoðuðum þá ætíð einhvern eða einhverja hluta hins fræga þjóðminjasafns. Stundum gengum við töluvert um þessa fögru ey, sem í rauninni er þó aðeins nes. Þarna búa mestu auðmenn og fyrirmenn Oslóborgar, og eru þar því viða mjög fögur íbúðarhús og skrúðgarðar. Þá eru þarna einhverjir þekktustu sumarbaðstaðir borgar- innar, oft afar fjölsóttir. Á einum stað á hinu fagra svæði þjóðminjasafnsins hefur verið komið fyrir útileikh.úsi (fri- luftsteater). Þar sáum við eitt sinn athyglisverða leiksýn- ingu. Einnig er okkur mjög minnisstæð samkoma, sem við nutum þar eitt sinn, og Samband norskra ungmennafélaga stóð fyrir. Var þar m. a. mikill og góður söngur, bæði kór- söngur og einsöngur, og svo mikið af hinum fögru, norsku þjóðdönsum, sem jafnan heilla mig, og ég óska ætið, að æska íslands iðkaði meira en gert hefur verið til þessa. Auk hins mikla þjóðminjasafns hefur nýlega verið komið fyrir í Byggðey þremur merkum safnhúsum, sem vissulega teljast líka til þjóðminja, og allir Norðmenn eru stoltir af. Á ég þar við Víkingaskipahúsið, Fram-húsið og Kontiki- húsið. Öll þessi hús skoðuðum við vandlega og þótti harla merkileg. Víkingaskipahúsið er byggt yfir einhverja allra merk- ustu fornminjafundi Norðmanna, víkingaskipin þrjú: Tune- skipið, Gokstad-skipið og Oseberg-skipið. Hvergi er vitað, að fundizt hafi i jörðu aðrir slíkir farkostir hinna löngu liðnu tima, en Víkingaöldin er talin ná yfir timabilið frá 800 til 1050 e. Kr. Hafa þessir glæsilegu farkostir Víkinga- aldarinnar, ásamt fjölmörgu, sem í skipunum var grafið, veitt afar mikilvægar upplýsingar, ekki aðeins um smiði víkingaskipanna, heldur og ótalmargt annað frá þeirri tíð. Hin fornu skip forfeðra okkar verðskulda því margfaldlega að vera varðveitt í glæsilegum húsakynnum, öldnum og óbornum til fróðleiks og augnayndis. Ýmsir þekktir vís- inda- og fræðimenn Norðmanna hafa varið miklum tfma til rannsókna á þessum málum og hafa skrifað um þau merkar bækur. Kunnastir þeirra eru þrir: Gutorm Gjessing, Hakon Shetelig og A. W. Brögger. Þeir, sem hafa hug á að kynna sér þessi mál ýtarlega, ættu að lesa hinar ágætu bækur þessara fræðimanna um víkingaskipin og rannsóknir þeirra í sambandi við þau. Hér verða ekki dregin fram nema örfá atriði. Víkingaskipin fundust öll á um það bil 40 ára tímabili. Tune-skipið fannst árið 1867 í haug á austurhlið Rolvsöy í Östfold, um sjö km frá Fredrikstad. Gokstad-skipið fannst árið 1880 í Kongshaugen á Neðri-Gokstad í Sandar-sókn á Vestfold, en Oseberg-skipið fannst á Oseberg-Ödegárden í Slagen-sókn á Vestfold, skammt frá Tönsberg. Öll höfðu skipin legið i leir (bláleir) og voru tvö þeirra, Gokstad- skipið og Osebergskipið alveg furðu lítið skemmd. Full- yrða fræðimenn, að það sé Ieirnum að þakka, hve vel þau hafi varðveitzt. Þessi tvö síðastnefndu skip gefa því alveg sérstaklega margvíslegar og merkilegar upplýsingar. í Gokstad-skipinu hefur verið grafinn mikill höfðingi, líklega konungur, klædd- 490

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.