Æskan - 01.10.1970, Page 50
Hér birtum við aftur mynd af TF-KAK nr. 29, sem við sögðum
frá í síðasta blaði. Mynd þessa tók Berghreinp G. Þorsteinsson
flugvélstjóri í Vestmannaeyjum 1961. Við TF-KAK stendur Jón N.
Pálsson, fyrsti eigandi hennar, núverandi yfirskoðunarmaður Flug-
félags íslands. Jón og Berghreinn voru í Eyjum til að skipta um
mótor í Dakota-flugvélinni í baksýn.
Ljósm.: Guðmundur Einarsson.
Nr. 32 TF-ABC
TBGER MOTH
Skráð hér 13. júlí 1946 sem TF-ABC, eign Agnars Kofoed-
Hansens. Flugvélin var ætluð til einkaflugs.
Hún var smíðuð 1941 hjá de Havilland Aircraft Company of
Canada Ltd., Toronto, Kanada. Framleiðslunr. var 4060.
11. júlí 1947 kaupir Flugskólinn Cumulus flugvélina, og var
hún eftir það m. a. notuð til kennsluflugs.
6. janúar 1948 eyðilagðist flugvélin, er henni var lent á ísilögðu
Elliðavatni. Flugmaðurinn slapp ómeiddur.
DE HAVILLAND D.H.82C TIGER MOTH: Hreyflar: Einn 130 ha.
de Havilland Gipsy Major. Vænghaf: 9.08 m. Lengd: 7.29 m. Hæð:
2.44 m. Vængflötur: 22.2 m’. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tóma-
þyngd: 579 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 829 kg. Arðfarmur: 75 kg.
Farflughraði: 145 km/t. Hámarkshraði: 175 km/t. Flugdrægi: 450
km. Flughæð: 4.000 m. 1. flug: 24. okt. 1931. — Alls smíðaðar
8492 Tiger Moth tvívængjur.
Ljósm.: N. N.
Nr. 33 TF-SHB
HUDSON
Skrásett hér 16. júlí 1946 sem TF-SHB, eign Steindórs J. Hjalta-
líns á Akureyri. Hingað var flugvélin fengin til farþega- og vöru-
flugs.
Hún var smíðuð 1943 hjá Lockheed Aircraft Corporation, Bur-
bank, California. Framleiðslunr. B 9368.
Á þessari flugvél var farið fyrsta einkaflugið frá l’slandi til út-
landa í júlí 1946, en þá flaug Steindór Hjaltalín o. fl. í henni til
Stóra-Bretlands, Skandinavíu og Danmerkur. Flugstjóri var Capt.
Edwards, R.A.F.
1. júlí 1949 selur Steindór flugvélina Flugfélaginu Flugferðir hf.
22. janúar 1950 eru þær takmarkanir settar á ferðir flugvélar-
innar, að skírteini fæst ekki framlengt nema til vöruflutninga ein-
göngu eða síldarleitar og annarrar slíkrar starfsemi. Þá var þessi
flugvél önnur af tveimur, sem skrásettar voru í heiminum. Hin
var skrásett sem einkaflugvél í Bretlandi.
29. júlí 1950 gjöreyðilagðist flugvélin í lendingu á Melgerðis-
melaflugvelli í Eyjafirði. Hún var þá að köma úr síldarleitarflugi.
Engan mann sakaði.
Afskráð 7. marz 1952.
LOCKHEED HUDSON IIIA: Hreyflar: Tveir 1200 ha. Wright Cy-
clone R-1820-87. Vænghaf: 19.95 m. Lengd: 13.40 m. Hæð: 3.63
m. Vængflötur: 51.19 m’. Farþegafjöldi: 13 eða 12. Áhöfn: 2 eða
3. Tómaþyngd: 4.960 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 8.400 kg. Arð-
farmur: 1.200 kg. Farflughraði: 260 km/t. Hámarkshraði: 457
km/t. Flugdrægi: 4.500 km. Flughæð: 8.000 m. 1. flug: 29. júlí
1937.
522