Æskan - 01.10.1970, Qupperneq 51
Arngrímur Sigurðsson og
Skúli Jón Sigurðarson rita um
íslenzkar flugvélar
Ljósm.: Arngrímur Sigurðsson.
Nr. 34 TF-ISH
DAKOTA
Skrásett hér 21. ágúst 1946 (fékk leyfi til reynsluflugferða 26.
júlí — 10. ágúst sama ár) sem TF-ISH, eign Flugfélags íslands hf.
Flugvélin var keypt af ameríska hernum (43-48045) á íslandi fyrri
part sumars 1946, en hún hafði áður verið skrásett í brezka flug-
hernum sem KG762.
Hún var smíðuð 1943 hjá Douglas Aircraft Company í Oklahoma
City. Raðnúmer: 25306/13861. •
Þessi flugvél var fyrsta Dakota-flugvél Isleridinga og um leið
stærsta flugvél flugflotans, þegar hún kom. Hún hlaut nafnið
Gljáfaxi. Hér var hún notuð til farþega- og vöruflutninga á innan-
landsleiðum, en hefur einnig flogið millilandaflug, t. d. til Eng-
lands í sept. 1948.
1. nóvember 1948 rann hún i hálku út af brautarenda á Kefla-
víkurflugvelli og stórskemmdist. Engan mann sakaði.
Flugvélin fékk ekki lofthæfisskírteini að nýju fyrr en 20. júní
1953, en þá hafði verið gert við flugvélina og hún endurnýjuð í
Reykjavík. Flugvélin hefur flogið síðan og jafnan reynzt hið bezta.
Hún hefur talsvert verið notuð til skíðaflugs til Grænlands, og
hafa aðrar islenzkar flugvélar ekki öllu víðar farið, enda verið í
þjónustu Flugfélagsi'ns í 24 ár.
Ljósm.: N. N.
(Snemma vetrar 1958 var TF-ISH notuð til landhelgisgæzlu í
,,þorskastríðinu“. Þá var alþjóða fiskveiðaeftirlitsfáninn málaður
á hana).
DOUGLAS C-47A DAKOTA: Hreyflar: Tveir 1200 ha. Pratt &
Whitney R-1830-92. Vænghaf: 28,96 m. Lengd: 19.63 m. Hæð:
5.20 m. Vængflötur: 91.70 m>. Farþegafjöldi: 24—29. Áhöfn: 2—3.
Tómaþyngd: 7.702 kg, (7.983), 8.507, [8.951] kg. Hámarksflugtaks-
þyngd: 12.700 kg, (12.500), 12.500, [12.200] kg. Arðfarmur: 2.159
kg, (1.699), 1.551, [729] kg. Farflughraði: 270 km/t. Hámarks-
hraði: 360 km/t. Flugdrægi: 2.400 km. Flughæð: 6.800 m. 1. flug:
17. desember 1935. — Tölur innan sviga tóku gildi 6. nóv. 1947,
hinar 21. ágúst 1946, feitar tölur giltu 1968. Tölur innan hornklofa
eiga við flugvélina með skíðaútbúnaði.
Ljósm.: Arngrímur SigurSsson,
Nr. 35 'TF-KAG
PIPER CUB
Skrásett hér 27. ágúst 1946 sem TF-KAG, eign Flugskóla Akur-
eyrar. Hingað var flugvélin keypt ný frá verksmiðju og ætluð til
kennslu- og einkaflugs.
Hún var smlðuð 26. júní 1946 hjá Piper Aircraft Corporation,
Lock Haven, Pennsylvania, USA. Framleiðslunr. var 18298.
18. nóvember 1946 er formlega tilkynnt, að flugvélin hafi brot-
lent nálægt Akureyri. (Hún hafði þá flogið aðeins 26 tíma).
2. nóvember 1953 var svo tilkynnt, að flugvélin hafði ekki verið
gerð flughæf að nýju og er óskað eftir þvl, að hún verði afskráð
(skr. 5. 11. 53).
30. apríl 1957 var flugvélin skráð á ný eftir endurbyggingu
(með stélhluta TF-KOS) og viðgerðir, og er þá Flugskólinn Þytur
I Reykjavfk orðinn eigandi hennar.
Hún var síðan notuð til kennsluflugs þangað til hún fórst við
Korpúlfsstaði 16. maí 1962. Flugmaðurinn dó og farþeginn stór-
slasaðist.
PIPER J-3C65 CUB: Hreyflar: Einn 65 ha. Continental A-65-8F.
Vænghaf: 10.72 m. Lengd: 6.82 m. Hæð: 2.02 m. Vængflötur:
16.58 rrR. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 331 kg. Há-
marksflugtaksþyngd: 551 kg. Arðfarmur: 111 kg. Farflughraði:
115 km/t. Hámarkshraði: 196 km/t. Flugdrægi: 340 km. Há-
marksflughæð: 4.000 m. 1. flug: 1938.
523