Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 4

Æskan - 01.01.1971, Qupperneq 4
Tommy Steele er alltaf jafnfrægur. Þeg- ar rokkmúsíkin féll í skuggann, fór hann aS leika í kvikmyndum, og hefur nú und- anfariS verið mjög dáður bæði á Stóra- Bretlandi og í Bandaríkjunum. Núna er hann að leika á móti Mary Hopkin í leik án orða (pantomime), mímuleiknum „Dick Whittington" í London. Hér er hann með konu sinni og dótturinni Emmu, sem er eins árs. t í þeim furðulega skara mannamynda, sem í garðinum eru staðsettar, á öllum aldursskeiðum, — frá barni I móður- kviði til örvasa gamalmennis. Gustav Vigeland fæddist á sveitabænum Vigeland, skammt frá Mandal, í aprll 1869 og andaðist 1943. Hið ríka listamannseðli hans kom glöggt I Ijós strax á barns- aldri. Honum var þá þegar Ijóst, hvað hann vildi verða. Með ómótstæðilegum vilja keppti hann að þvi að verða myndhöggvari. Á honum, eins og fleirum, sannaðist hið fornkveðna, að sigursæll er góður vilji, — ekki sízt, þegar hæfileikarnir eru lika ótvíræðir. Þótt Vigeland væri alltaf nokkuð umdeildur og sé enn, eins og raunar allir miklir menn á hvaða sviði sem er, hlaut hann fljótt fylgi margra skilningsríkra manna, sem greiddu götu hans á listamannsbrautinni, bæði heima og erlendis. Er um það allt, nám hans, sigra og ósigra, löng saga, sem ekki verður rakin hér. Ýmsir talsmenn hans í Noregi unnu markvisst að því að skapa honum fullnægj- andi og viðeigandi starfsaðstöðu, þar sem hann gæti ótrufl- aður og áhyggjulaus helgað sig list sinni. Fyrir tilverknað þessara manna fyrst og fremst afhenti svo Oslóborg Vige- land stóra og fullkomna byggingu við Frogner, þar sem hann skyldi búa, starfa og koma fyrir frummyndum sínum og listaverkum. Einnig tryggði borgin honum árlega all- mikla fjárhæð til greiðslu á efni og vinnulaunum. En eftir hans dag skyldi þetta verða safn allra listaverka hans og tllheyra borginni. Má því með sanni segja, að Vigeland hafi lifað það, sem fáum hlotnast: að njóta fágætrar viður- kenningar í lifanda llfi, ekki aðejns I föðurlandi sínu, held- ur og vlða um hinn menntaða heim. íslendingum mun kunnast af verkum Vigelands Snorra- styttan f Reykholti. Við komum oftar í þennan undragarð en nokkurn annan í Osló og nutum þess ætíð í ríkum mæli. Jafnframt kom- um við stundum í hið stórkostlega Vigelandssafn og dvöld- þar lengri eða skemmri tíma. Endir. í nóvember s.l. sendu Sovétmenn eina af tunglflaugum sínum til mánans. Með þessari tunglflaug var sendur vagn, er nefndur hefur verið „Tunglgengill 1“, og hefur hlutverk hans á undanförnum vikum verið það að aka um á yfir- borði mánans og rannsaka umhverfi sitt. í opinberri tilkynningu um Tunglgengil 1 segir, að hann hafi leyst af höndum af mikilli nákvæmni verkefni sín — sent til jarðar upplýsingar um eiginleika þess hluta yfir- borðsins, sem hann hefur farið um, og svo um farartálma á því. Hann hefur oft sent sjónvarpsmyndir til jarðar frá tunglinu. Einn af vísindamönnum þeim, sem smíðuðu vagninn, segir, að reynslan af honum muni notuð síðar til að gera nýja vagna til athugunar á öðrum hnöttum: reikistjörnu- vagnar munu verða eins ólíkir þessum fyrsta tunglvagni og fyrsti bíllinn þeim, sem nú koma út úr verksmiðjunum, sagði hann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.