Æskan - 01.01.1971, Síða 7
að síður er Leipzig-kaupstefnan haldin öli
árin. Aftur á móti varð erfiðara við að eiga
í heimsstyrjöldinni síðari, því að nóttina
milli 3. og 4. desember 1943 eyðilögðust
80% af byggingum kaupstefnunnar í loft-
árás bandamanna á Leipzig. — En endur-
bygging hófst strax eftir stríðslok, og síð-
ustu 27 árin hefur þessi kaupstefna vaxið
svo, að telja má hana risafyrirtæki og mið-
stöð heimsviðskiptanna.
Árlega taka 10—15 þúsund sýnendur
frá 70—80 löndum þátt í kaupstefnunni,
og í nokkur skipti hafa íslendingar átt
þarna sjálfstæðar sýningardeildir, og
hverja sýningu sækja margir íslendingar.
m
Hefurðu ekki séð svinin okkar tvö, Hans?
FELUMYND
Foreldrar Elmiru litlu fagna henni eftir tuttugu og þriggja daga fjarveru.
í sumarhögunum og skógunum skellur nóttin snögglega yfir. Leitarmenn
komu aftur heim í selið tómhentir. Stúlkan var týnd.
Morguninn eftir var lögregiunni skýrt frá hvarfi Elmiru og fjöldi manns leitaði
vandlega í skógunum og á ökrunum í nágrenninu. Og þá var það, sem (búarnir
fóru að heyra þessa sorglegu tilkynningu í útvarpinu: „Sex ára gömul stúlka
er týnd ...“
Skólabörnum var gefið frí til að taka þátt í leitinni með öllu fólkinu á
samyrkjubúinu. En eftir þriggja daga árangurslausa leit, var henni hætt. Ali-
sakib faðir Elmiru lýsti yfir sorg.
Það er gamall siður hjá fólkinu í Azerbaidsjan að koma saman fyrst eftir að
þrír sorgardagar eru liðnir, síðan eftir sjö daga og eftir það á hverjum
fimmtudegi, þar til fjörutíu dagar eru liðnir. Til sorgarsamkomunnar, sem á
aserbaidsjönsku heitir Jas — dreif að mikinn fjölda manna, og voru þar bæði
vinir fjölskyldunnar og kunningjar og fólk, sem hún hafði ekki áður þekkt,
bæði Azerbaidsjanar, Rússar og Armenar. Fólkið kom til að deila sorgum
fjölskyldunnar.
Þetta var fyrsti „dsjúma ahksjami", þ. e. sorgarfimmtudagur, síðan leið
hinn næsti og sá þriðji. En fjórði fimmtudagur sorgarinnar breyttist í kátan
„toj“, en það þýðir hátíðisdagur: Elmira var fundin.
Tuttugu og þremur dögum eftir að hún týndist fann sextugur skógarvörður,
Aleksei Polovinkin hana aftur.
7