Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1971, Síða 40

Æskan - 01.01.1971, Síða 40
Heimsókn í Leikfangaland ORGEL í barnaherbergi ♦------------------- Oll börn hafa gaman af að láta heyra hátt til sin, helzt svo að um muni, og oft segj- um við fullorðna fólkið eitt- hvað á þessa leið: „Hvaða dé- skotans hávaði er þetta i krökkunum!“ — Til allrar hamingju eru það þó alltaf mörg börn, sem svala þessari liávaða])örf sinni með því að leika á einhver liljóðfæri, oft þó mjög frumstæð hljóðfæri. Ef til vill byrja þau með blikk- trommur og siðan alls konar flautur. Foreldrarnir geta fljótlega komizt að því, hvort hljóm- iistarliæfileikar búa með börn- um þeirra, og reyna þá að hlynna að þeim með því að útvega börnunum liljóðfæri og kennslu á þau. Það er viðurkennd staðreynd að orgelið er ágætt liljóðfæri fyrir byrjendur og þroskar sönggáfu barna. En nú er það svo, að venjuleg orgel eru stór og dýr hljóðfæri, og oft er erfitt fyrir lítil börn að troða fótafjalirnar og spanna yfir hreiðar nóturnar. Ymsir liafa því gert tilraunir til að smiða og framleiða orgel handa litl- um börnum, og sjáum við eitt þeirra liér á myndinni. Það heitir Bon-Tempi-orgel og er framleitt i þvi söngsins landi, Ítalíu. Þetta orgel er sniðið fyrir litlar harnahendur, og ekki þarf að stiga neinar fóta- fjalir á því, — rafstraumur sér fyrir því. Og tónar þessa hljóðfæris eru merkilega hrein- ir og skærir. Geta má þess, að tölustafir standa á nótunum, og lögin í nótnaheftinu, sem fylgir orgelinu, eru einnig byggð upp með tölustöfum. Ekki ]>arf þvi annað en lesa tölustafina í bókinni og styðja á tilsvarandi nótu á nótna- borðinu, þá kemur lagið. Ekki munu orgel þessi vera fáanleg liér á landi enn, en vafalaust koma þau hingað á næstunni, því að þau hafa þeg- ar hlotið miklar vinsældir hjá þeim, sem reynt hafa. Götuvaltari ♦---------------------- Oft er dálítill vandi að velja leikföng handa 2 ára börnum eða yngri, m. ö. o. þeim, sem eru nýbyrjuð að ganga á eig- in fótum. Hér kemur eitt leik- fang handa þeim, gert úr frem- ur mjúku plasti. Það er þessi götuvaltari, sem þið sjáið hér á myndinni. Börnin sitja ein- faldlega klofvega á þessum grip og ýta sér eða spyrna áfram með fótunum. Ekki er mikil hætta á, að liúsgögnin verði fyrir áföllum eða skaða, því eins og áður er sagt, er valtari þessi gerður úr mjúku efni. Hjólaskautar ♦---------------------- Svo eru það þessir ensku lijólaskautar. Eins og sést á myndinni eru þetta venjulegir skautar á skautaskóm, en á liliðar þeirra eru fest 3 hjól úr trefjagleri, hvert fram af öðru. Hægt er að „fara á skauta“, þótt enginn ís sé fyr- ir fæti, aðeins sléttur flötur, og svo þéttur, að skautahjólin sökkvi ekki niður í hann. Þetta eru nokkuð dýrir gripir, kosta i Englandi rúmlega 1200 kr. í stærðuin fyrir börn, og u. þ. b. 1500 kr. fyrir fullorðna. Ekki ráðleggja framleiðendur börn- um að nota þessa gerð skauta úti á akbrautum bila, slysa- hættan er þá mikil. Jane fölnaði. „Ég trúi því ekki,“ sagði hún í hálfum hljóðum. „Það er ekki satt, þið skuluð sjá,“ sagði hún við Clayton, „að hann kemur aftur, og þá mun hann sanna, að þér hafið rangt fyrir yður. Þér þekkið hann ekki eins vel og ég. Ég skal segja yður, að hann er göfug- menni.“ Það var eitthvað í rödd hennar, sem gerði Clayton órökvísan. „Ef til vill hafið þér á réttu að standa," mælti hann. „En ég held, að við þurfum ekki l'engur að hugsa um þessa mannætu. Vafalaust mun hann gleyma okkur fyrr en við gleymum honum. Þetta er hálfvitlaus ræfill og í rauninni aðeins eitt af dýrum skógarins hér.“ jane svaraði engu, en hjarta hennar lierptist saman. Reiði og hatur gegn þeim, sem maður elskar, stælir hjarta manns, en fyrirlitning eða meðaumkun gerir það að verkum, að rnann setur hljóðan. Hún vissi-, að Clayton talaði aðeins það, sem hann hélt, og í fyrsta sinn fór hún að íhuga grundvöllinn undir ást sinni. Hún sneri sér hægt við og hélt til kofans. Hún reyndi að hugsa sér skógarguðinn sinn við hlið sér á einhverju skemmti- ferðaskipinu. Hún sá hann eta með höndunum, rífa mat- inn sundur eins og villidýr og þurrka af fingrum sér á líkarna sínum. Það fór hrollur um hana. Hún sá hann, er hún leiddi hann fram fyrir vini sína — rustalegan, ólæsan villimann, hún hrökk við. Hún var nú komin í klefa sinn og setzt á fleti sitt með aðra höndina á brjóstinu, þá fann hún allt í einu nistið frá lífgjafa sínum á brjósti sér. Hún tók það, hélt á því urn stund í lófanum og horfði á það tárvotum aug- um. Hún bar það að vörum sér, hallaði sér út af, grúfði andlitið í grasið í fletinu og grét. „Villidýr," tautaði hún. „Ég vildi, að guð gerði mig að villidýri, því að hvort sem þú ert maður eða villidýr, þá er ég þín.“ 40

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.