Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1971, Síða 44

Æskan - 01.01.1971, Síða 44
Lögregluþjónninn hefur ORÐIÐ í umsjón Asmundar Matthxassonar GÆTIÐ ÖRYGGIS í SKAMMDEGINU NOTIÐ ENDURSKINS- MERKI að er alltof algengt, að börn of- meti þekkingu sína á umferðar- reglunum. Að vísu vitið þið oft mikið um, hvað má og hvað ekki má gera. Einnig þekkið þið mörg umferðar- merki, vitið lögun þeirra og lit og hvað þau heita. En það þýðir ekki, að þið breytið ailtaf rétt, þegar hætta eða vandi er á ferðum. Hinn mikli fjöldi barna, sem slasast ( umferðarslysum, sannar þetta, þvf miður. Það er annað að kunna umferðarreglurnar og fara eftir þeim. Það er t. d. ekki nóg að vita til hvers gangbrautir eru, en fara svo kannski á ská yfir götuna rétt við þær. AS fara yfir umferðargötu er alltaf hættulegt, einnig þar sem gangbrautir eru, en þar er þó öryggið meira. I vissri fjarlægð frá gangbraut fær ökumaðurinn aðvörun um, að hún sé framundan. Rétt á eftir blasir við hon- um gangbrautin, sem oftast er áber- andi, nema á vetrum. Þar sem öku- maðurinn fær þannig hverja aðvörun- ina eftir aðra, ætti hann að sjálfsögðu að draga úr hraða og sýna mikla að- gát. Af þeim sökum hlýtur gangbrautin að vera hepþilegasti staðurinn til að fara yfir götu. Og hún á að vera I huga ykkar eins og brú yfir á eða læk. Engum dettur í hug að vaða straum- harða á, þegar hann getur komizt yfir hana þurrum fótum, ef hann notar brúna. Hitt er svo annað mál, að mikið vantar á, að allir ökumenn sýni þessa sjálfsögðu aðgæzlu, og sá, sem ekur ekki varlega, er hann nálgast gang- braut, gerir það ekki heldur f öðrum tilvikum. Treystið þess vegna ekki um of á, að ökumenn stanzi við gang- 44

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.