Æskan - 01.01.1971, Side 61
HEIMILISBÓK ÆSKUNNAR
f---------------------
Forstofan. Yztu forstofu ætti ekki að bóna. Það getur vaidið
slysi, þegar komið er inn á snjóugum skóm.
Sumt af þessum ráðleggingum og teikningum er tekið úr
erlendri bók, en annað er tekið beint úr Hússtjórnarbókinni. Hús-
stjórnarbókin er þýdd úr dönsku og kom út í október 1968. Hún
er notuð sem kennsiubók í hússtjórn við ýmsa skóla landsins, en
á erindi inn á hvert heimili og er jafnt fyrir konur sem karla. Bók
þessi er einhver fjölþættasta bók um heimilishald, sem komið
hefur út á íslenzku á þessari öld. Hússtjórnarbókin er þýdd af
Valgerði Hannesdóttur og Sigríði Haraldsdóttur hússtjórnarkenn-
ara og gefin út af Leiftri.
v.
/
Þórunn Pálsdóttir:
HEIMILISBÓK ÆSKUNNAR
" ..N
HEIMILISBÓK
ÆSKUNNAR
Slys á börnum
Þegar við erum að vinna hin ýmsu heimilisstörf og allt gengur
vel, tökum við ekki eftir, hvaða hætta getur stafað af öllum þeim
hlutum og efnum, sem við erum með handa á milli. Hér á eftir
koma nokkur algeng dæmi um slysahættu.
Eldspýtur og börn. Lítil börn eiga ekki að leika sér að eldspýtum.
Þau læra allt í einu að kveikja á þeim, og grípa þá gjarnan blöð
og annað eldfimt dót til að stækka logann.
Svefn og sígarettur. Fólk, sem hefur vanið sig á þann ósið að
reykja á kvöldin og nóttunni í rúminu, býður hættunni heim með
því að sotna út frá sígarettunni.
Kertaljós. Þegar rafmagnstruflanir verða og við notum kerti, ættum
við að forðast að fara með kertið í geymsluna. Horfið á myndina.
Ef einn neisti fer í kistuna, er voðinn vís.
V.