Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1952, Page 41
ALMANAK 41
þá umboðssali að næturlagi meðan bóndinn var að heim-
an og tók hveiti úr kornhlöðu hans. Hvatirnar fyrir þess-
ari næturferð komu í ljós, þegar umboðssali þessi stökk
úr landi með all mikið af peningum félagsins.
Á þessum árum veittu lögin litla vernd bændum, sem
skulduðu; nú eru lögin meiri hlífiskjöldur í þeirra garð.
En mikil var vinnan, og daglegur vinnutími myrkr-
anna á milli, og stundum nokkur hluti nætur, og stór
átök við grjót og trjárætur með áhuga og keppni.
Utanbyggðarmaður réðist eitt sinn hjá bónda til að
grafa upp rætur; var maður þessi þekktur fyrir ötulleik
og trúmensku; sjálfur gegndi bóndi heimastörfum; gat
hann þess, að þegar kom að vanalegum háttatíma væri
hann enn í annríki, og upp var hann kominn fvrir allar
aldir; kvaðst hann ógerla vita hvenær liann hefði sofið.
Bóndi þessi komst í nokkur efni, en varð ekki langlífur.
Vinnunni fylgdi þó nokkur ánægja; það, sem sáð var,
bar margfaldan ávöxt, jörðin skilaði því aftur með mikl-
um arði. Gaman var á haustin um þreskitímann, þá
hópuðust menn saman M'ð vélarnar, og var þá glatt á
hjalla; flestir voru ungir og hraustir, sem að því unnu.
Þar kom, að hagur manna fór að taka framförum; menn
gátu nú veitt sér verkfæri til nytsemdar og þæginda.
Fór það í vöxt hröðum skrefum.
Um 1893 heimsótti séra Mattías Jochumson Argyle-
búa; fanst homnn mikið til um frjálsmannlegt viðmót
manna, og keyrslutæki. Næsta ár kom dr. Valtýr Guð-
mundsson; lét hann s\o um mælt, að sér litist svo vel á
efnahag manna í Argyle, að það myndi teljast “phantasy”
—þannig komst hann að orði—á Islandi, ef hann færi að
lýsa fyrir mönnum hag manna hér.
Iðulega sýndu menn hjálpsemi hvor öðrum. Eitt sinn
kom fátækur barnamaður til efnaðs bónda; gat hann
þess. að hann hefði enga mjólkandi kú, enda hefði litlar
heybyrgðir. Daginn eftir sá hann til manns á ferð með