Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 36

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 36
Landnamshjónin GUÐMUNDUR (George) og GUÐBJÖRG FREEMAN. Eftir Richard Beck “Hver einn bær á sína sögu”, segir séra Matthías Joch- umsson í hinu svipmikla kvæði sínu um Skagafjörð. Og þau sannmæli skáldsins eiga eigi aðeins við um íslenzka sveitabæi heima á ættjörðinni, heldur má hið sama segja um íslenzku landnemabýlin vestanhafs,víðsvegaríbyggð- um Islendinga þeim megin hafsins. Þau eiga sína merkis- sögu, sögu gleði og sorga, sögu sigra og ósigra, því að þeim þáttum báðum er líf manna slungið, hvar sem því er lifað á hveli jarðar, ekki síst á vettvangi harðsóttrar brautryðjendabaráttunnar. Og sérstaklega eiga þau frum- herjabýlin sér merkilega sögu, sem verið hafa áratugmn saman miðstöð verklegra framfara og hollra menningar- legra áhrifa innan sveitar sinnar. Allir, sem nokkuð að ráði þekkja til, munu fúslega játa, að þannig hafi því verið farið um heimili þeirra Guðmundar (George) og Guðbjargar Freeman, að Up- ham, í Mouse River-byggðinni íslenzku í Norður-Dakota. Og þar sem það eru nú einu sinni þeir, er á bænum búa, sitja staðinn, sem um annað fram skapa sögu hans, þá verður saga höfuðbólsins íslenzka í Mouse River-byggð- inni því aðeins bezt sögð og réttast, að sögð sé saga þeirra ágætu landnámshjóna, sem þar hafa, bókstaflega talað, “gert garðinn frægan” í meir en aldarhelming; en þó

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.