Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 59

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 59
ALMANAK 61 arstungu, eru þar tvær gagnmerkar ættir. Olga er ein af hinum nafnkunnu Friðrikssons systrum, (Mrs. T. E. Thor- steinson, Mrs. B. S. Johnson, Mrs. A. S. Arason og Miss Ruby Nanna). Og saga Óla væri ekki nema hálfsögð, ef hennar væri ekki getið. Foreldrar hennar voru nafnkunn fyrir dugnað og skörungsskap, og félagsstarfssemi í Ar- gyle byggð, heilan mannsaldur. Og hér hefir eplið ekki fallið langt frá eikinni. Hún er frábær myndarkona, bæði í sjón og reynd. Olga er hreinhjörtuð, vinföst, tíguleg á fæti og fríð sýnum. Viðsýn í hugsun og félagskona, sem bezt getur. Hefir hún tekið veigamikinn þátt í safnaðar starfi og öðrum almennum félagsmálum, sem og í kven- félag Frelsissafnaðar. Heimili þeirra Óla og Olgu hefir verið höfuðból, með mesta myndarbrag. Þar hefir ætíð verið gott að koma, því gestrisnin hefir brosað á hverjum fingri. 1 húsinu þeirra hefir jafnan verið bjart. Húsfreyjan hefir ekki þurft að sækja sólskin út í svuntunni sinni, eins og konan í þjóðsögunni. Þar hefir verið nóg sólskin um allan bæ- inn. Ef öll hjón væru eins og Óli og Olga, og öll heimili eins og þeirra heimili, þá væri lífið fegurra og heimurinn bjartari. Börn þeirra eru óskabörnin. Esther Vilborg, gift Arnóri Ingjaldson í Winnipeg. Hún er fríðleiks kona. Hefir yndislega söngrödd og skemti oft á samkomum, gleðimótum og í kirkju, með fögrum söng, af fúsleik og glöðu geði. Skafti, sonurinn, sem nú hefir tekið við búinu, var lengi í canadiska flughernum hér og á Englandi. Hann var sendur heim og leystur frá herþjónustu fyrir stríðs- lok, vegna heilsubilunar. Hann er myndarmaður. Kvænt- ur er hann hérlendri konu. Þau Óli og Olga hafa átt prúð- ann og manndómsríkann æfiferil. Þau eru nú á bezta aldri, eftir langt dagsverk. Vér óskum þeim langra líf- daga og megi hamingjusólin, björt og hrein, skína yfir æfibraut þeirra, til daganna enda. Megi Argyle byggð og Islendingar eiga marga þeirra líka.

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.