Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Síða 63
ALMANAK
65
glögga þáttar Árna Sigurðssonar í “Söguþætti af landnámi
Islendinga við Brown”, Almanak Ó. S. Thorgeirssonar
1938.
Ólst Sveinn upp hjá foreldrum sínum, er bjuggu á
Sigurbjörg Sigfúsdóttir Sveinn Árnason
ýmsum stöðum í Vopnafirði, eftir að Árni faðir hans hætti
gestgjafastarfinu og gerðist bóndi. Segist Sveini svo sjálf-
um frá, að hugur hans hafi snemma hneigst til bóknáms.
Var honum því komið fyrir hjá hinum ágæta fræðimanni,
séra Guttormi Vigfússyni á Svalbarði í Þistilfirði, til þess
að læra undir skóla, og var hann hjá honum árlangt (1886-
87), en sökum efnaskorts varð eigi af því, að hann færi í
Latínuskólann í Reykjavík. Ytti það undir hann til Am-
eríkuferðar, sem marga aðra, að þar myndi hann eiga
þess rýmri kost að afla sér menntunar, og fluttist hann
því vestur um haf sumarið 1889, þá rétt tvítugur að aldri,
ásamt Þórði bróður sínum, 16 ára gömlum. Lá leið þeirra
bræðra fyrst til Winnipeg, en síðan suður í Akra-byggð í
Norður-Dakota. Vann Sveinn að bændavinnu á sumrum,
en stundaði skólanám á vetrum, aðallega veturinn 1891-
92, og tók kennarapróf þá um vorið; kenndi hann síðan