Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Side 74
76
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
var séra Valdimar J. Eylands, er verið hafði varaforseti
nokkur síðustu árin, kosinn forseti. Á fundi stjórnarnefnd-
ar stuttu eftir þingið var Gísli Jónsson prentsmiðjustjóri
endurkosinn ritstjóri “Tímarits” félagsins.
29. febr.—Dr. John C. West, forseti ríkisháskólans í
Norður-Dakota, séra Albert Kristjánsson, fyrrv. forseti
félagsins, og prófessor Ásmundur Guðmundsson kosnir
heiðursfélagar í Þjóðræknisfélaginu.
Marz—Blaðafréttir greina frá því, að nökkru áður hafi
heimaþjóðin íslenzka heiðrað Sigurð Helgason (H. S.
Helgason) tónskáld og söngstjóra í Blaine, Washington,
með því að senda honum stóra fjárupphæð og skrautritað
ávarp í þakkar- og viðurkenningarskyni fyrir skerf hans
til íslenzkrar söngmenntar og fyrir margra ára víðtækt
starf hans á því sviði vestan hafs. Var honum sá sómi
sýndur sérstaklega fyrir hið fagra og tilkomumikla lag
hans við kvæðið “Skín við sólu Skagafjörður”, sem löngu
er víðfrægt og vinsælt orðið meðal Islendinga beggja
megin hafsins.
22. apríl—Varð Arinbjöm S. Bardal útfararstjóri átt-
ræður. Er hann löngu kunnur fyrir þáttöku sína í félags-
málum Islendinga vestan hafs, einkumbindindismálumog
kirkjumálum. Hefir hann árum saman verið Stórtemplar
Goodtemplarareglunnar í Manitoba og var einnig um
skeið forseti Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg.
23. apríl—Mrs. Björg V. Isfeld endurkosin forseti Win-
nipegdeildar Hljómlistarfélags Manitoba (Registered
Music Teachers Ássociation) á ársfundi félagsins.
Apríl—Dr. Richard Beck, prófessor í Norðurlandamál-
um og bókmenntum við ríkisháskólann í Norður-Dakota,
kosinn heiðursfélagi í skáldafélaginu, “The Midwest Fed-
eration of Chapparral Poets” í Bandaríkjunum.
10. maí—Útskrifuðust eftirfarandi nemendur af ísl-
enzkum ættum af fylkisháskólanum í Saskatchewan (Uni-
versity of Saskatchewan):