Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Side 76
78
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Agnes Holm
Constance Lillian Jóhannesson
Lilja Johnson
Emma Eleanor Olson
Bachelor of Science in Agriculture:
Emily Una Johnson
Bachelor of Science in Electrical Engineering:
Franklin Marino Árnason
Diploma in Agricultin-e:
Lárus Sigurður Gíslason
Diploma in Interior Decoration:
Helen Kristbjörg Sigurdson
Dr. Eggert T. Fjelsted, er framhaldsnám stundar í
læknisfræði, hlaut verðlaun Vísindafélagsins í Winnipeg
(Scientific Club of Winnipeg), að upphæð $150.00, fyrir
rannsóknir sínar, og Aðalsteinn F. Kristjánsson, er tók
þriðja árs próf í læknisfræði, hlaut einnig verðlaun.
Maí—Um þær mrrndir kom Guðmundur Kristjánsson
söngvari úr söguríkri söngför víðsvegar á herstöðvum
Bandaríkjanna á Kyrrahafssvæðinu, undir umsjón
skemmtana-deildar hersins. Söng hann fyrir miklu fjöl-
menni á ferðalagi þessu og var hvarvetna mjög vel tekið.
31. maí-2. júní—Tuttugasta og annað ársþing
Bandalags lúterskra kvenna haldið í Argyle-byggð í Man-
itoba. Mrs. Ingibjörg J. Ólafsson var endurkosin forseti.
Júní—Halldór M. Swan, verksmiðjueigandi í Winni-
peg, kosinn lífstíðar heiðursforseti bogfimi klúbbsins þar
í borg (Winnipeg Archery Club), en hann hefir verið for-
göngumaður í þeirri íþróttagrein.
Júní—Snemma í þeim mánuði lauk Ása Jónsdóttir, frá
Ásum í Austur-Húnavatnssýslu, “Bachelor of Arts” prófi
á Carlton College í Northfield, Minnesota, með sálar-
fræði að aðalnámsgrein. Hefið hún getið sér ágætt orð í