Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Síða 78
80
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Júlí—Miss Vordís Friðfinnsson (dóttir Mr. og Mrs.
Kristmundar Friðfinnsson, Geysir, Man.) og Miss Borga
Sigurdsson (dóttir Mr. og Mrs. Kristján Sigurdsson, Geys-
ir, Man.) báru sigur úr býtum í ræðusamkeppni á þingi
Samvinnufélaga bænda í Manitoba (Manitoba Federa-
tion of Agriculture and Co-operatives), er háð var í Win-
nipeg. Ungmenni víðsvegar úr Manitoba-fylki tóku þátt
í samkeppninni.
18. júlí—Sveinbjöm Stefán Björnson (sonur Sveins
læknis og Marju Björnson, Ashem, Man.) og Sveinn Hall-
dór Octavíus Eggertson (sonur Árna lögfræðings og Maju
Eggertson í Winnipeg) útskrifuðust í læknisfræði frá
læknaskóla Manitoba-fylkis. Stundar hinn fyrrnefndi
lækningar í félagi við föður sinn í Ashern, en hinn síðar-
nefndi stundar lækningar við Manitoba ClinicíWinnipeg.
21. júlí—Vígð við fjölsótta og veglega athöfn kirkja í
Piney, Man., sem byggð hafði verið af öllum kirkjuflokk-
um þar sameiginlega. Meðal ræðumanna voru séra Philip
M. Pétursson, Winnipeg, og séra Skúli J. Sigurgeirsson,
Gimli, Man., er fluttu kveðjur kirkjufélaga sinna.
Júlí-1 þeim mánuði var Mrs. Björg V. Isfeld kosin í
framkvæmdarnefnd hins fjölmenna félags canadiskra
hljómlistar-kennara (Can. Federation of Music Teachers
Association) á þingi þess í Toronto, Ont.
28. júlí—Fjölmennur íslendingadagur haldinn í Blaine,
Wash. Fyrr í mánuðinum (þ. 6. júlí) höfðu íslenzkir náms-
menn vestur þar efnt til fjölsóttrar lýðveldishátíðar í Los
Angeles, Calif.
31. júlí—Sendiráð Danmerkur í Washington, D.C. til-
kynnir, að Danakonungur hafi sæmt dr. Richard Beck
dönsku frelsisorðunni (“Kong Christian den Tiendes Fri-
hedsmedaille”) í viðurkenningarskyni fyrir störf hans í
þágu Danmerkur á stríðsárunum.
5. ágúst—Islendingadagur haldinn að Gimli við óvenju
mikla aðsókn. Guðmundur Jónsson söngvari, er fenginn
hafði verið til að skemmta á hátíðinni alla leið vestan úr