Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 87
ALMANAK
89
ára aÖ aldri. Ættaður frá Holtum í Austur-Skaftafellsýslu og
kom vestur um haf 1903. Hafði átt heima í Nýja íslandi, Sas-
katchewan og Winnipeg.
16. Carl F. Frederickson, á St. Paul sjúkrahúsinu í Vancouver, B.C.
Fæddur í Argyle-byggð í Manitoba 30. des. 1886. Foreldrar:
Tryggvi Frederickson og Valgerður Jónsdóttir (systir dr. B. B.
Jónssonar og þeirra systkina).
18. Margrét Guðmundsdóttir frá Stekkholti í Biskupstungum, ekkja
Gabríels Gabríelssonar, í Leslie, Sask., hnigin að aldri.
19. Prófessor Sveinbjöm Johnson, að heimili sínu í Champaign í
Illinois-ríki í Bandaríkjunum. Fæddur að Hólum í Hjaltadal
10. júlí 1883. Foreldrar: Jón skipstjóri Jónsson og Guðbjörg
Jónsdóttir. Fluttist barnungur vestur um haf. Víðkunnur
menntamaður og forystumaður á stjórnmálasviðinu. (Smbr.
grein um hann í Almanakinu 1943).
22. Bjarni Sturlaugsson, að heimili sínu í Wynyard, Sask. Fæddur
1865, en fluttist vestur um haf til N. Dakota 1884, seinna til
Winnipegosis, Man., en átti heima i Wynyard og grennd síð-
an 1908.
22. Jónas Helgason Goodman, landnámsmaður frá Upham, N.
Dakota, á St. Luke sjúkrahúsinu í Bellingham, Wash. Fæddur
23. apríl 1873 á Ölvaldsstöðum í Borgarhreppi í Mýrasýslu.
Foreldrar: Ilelgi Guðmundsson og Helga Eyvindardóttir. Flut-
tist ungur að aldri með foreldrum sínum til Élk Rapids í Michi-
gan-ríki, þaðan stuttu síðar til Hallson-byggðar í N. Dakota og
árið 1887 til hins nýja íslenzka landnáms í Mouse River daln-
um í N. Dakota. (Sjá Almanak 1913.
25. Skáldkonan Guðrún H. Finnsdóttir, kona Gísla Jónsson prent-
smiðjustjóra, að heimili sínu í Winnipeg. Fædd á Geirólfsstöð-
um í Skriðdal 6. febr. 1884. Foreldrar: Finnur F. Björnsson og
Bergþóra Helgadóttir. Fluttist vestur um haf með manni sín-
um 1904 og höfðu jafnan síðan verið búsett í Winnipeg. Hafði
getið sér mikið orð fyrir ritstörf sín og tekið margháttan þátt
í vestur-íslenzkum félagsmálum. (Smbr. minningargrein um
hana í þessum árgangi Almanaksins).
27. Skúli Vilberg Eldjámsson, sjómaður í verzlunarflota Canada.
Fæddin 10. febr. 1910. Foreldrar: Stefán og Ingigerður Eldj-
ámsson, er bjuggu í grennd við Gimh, Man.
28. Ekkjan Guðrún Goodman, á elliheimilinu "Betel” að Gimli,
Man. Fædd 26. ágúst 1857 á Kalstöðum í Miðdal í Dalasýslu.
Foreldrar: Jóhannes Halldórsson og Guðríður Guðmundsdóttir.
Kom til Canada 1902 og hafði stöðugt átt heima í Manitoba.
29. Bjöm Pétursson, fyrrum kaupmaður í Winnipeg, að heimili
sínu í Vancouver, B.C. Fæddur 1871 á Ytri-Brekkum í Skaga-
firði. Foreldrar: Páll Bjömsson og Margrét Bjömsdóttir. Flutt-
ist vestur um haf til Norður-Dakota með foreldrum sínum
1883. Albróðir dr. Rögnvaldar Pétursson og þeirra systkina.