Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Qupperneq 93
ALMANAK
95
síðar og er talinn hafa verið fyrsti póstafgreiðslumaður i þeirri
nýlendu, og fullyrt, að þau hjón hafi nefnt pósthúsið “Lundar”
eftir æskuheimili konu Hinriks, Oddnýjar Ásgeirsdóttir frá
Lundum í Stafholtstungum í Borgarfirði.
22. Vilhjalmur (Bill) Erickson, að heimili sinu í Minneapolis, mið-
aldra.
26. Ingvar Gíslason, að heimili sonar síns í Steep Rock, Man.
Fæddur 5: maí 1877 á Sveinavatni í Grímsnesi. Foreldrar:
Gísli Þorgilsson og Ingunn Guðmundsdóttir. Fluttist vestur
um haf til Winnipeg 1912, en nam land í Reykjavíkur-byggð-
inni við Manitoba-vatn 1915 og var síðan búsettur þar.
27. Jón Kristjánsson, að heimili sínu að Lundar, Man. Fæddur að
Barmi i Gufudalshrepp í Barðastrandarsýslu 18. febr. 1854.
Foreldrar: Kristján Einarsson og Anna Jónsdóttir. Flutti vestur
um haf til Winnipeg 1891, en þaðan til Garðar, N. Dakota,
síðar landnámsmaður bæði í Mouse River-nýlendunni í N.
Dakota og Alberta-nýlendunni íslenzku, en hafði allmörg síð-
ustu árin verið búsettur að Lundar.
27. Viggo Thordarson, á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg. For-
eldrar: Guðmundur Thordarson og Guðlaug Jónsdóttir þar í
borg.
ÁGÚST 1946
11. Jóhanna Sigurlín Thordarson ,ekkja Jóhannesar Thordarson, að
heimili sínu í grennd við Svold, N. Dakota. Fædd að Skálanesi
í Seyðisfirði 1. des. 1857. Foreldrar: Friðbjöm Guðmundsson
og Guðrún Jónsdóttir. Fluttist til Ameríku með manni sínum
1883, fyrst til Garðar, N. Dak., en námu síðar land í grennd
við Svold og bjuggu þar jafnan síðan.
12. Pétur Jóhann Anderson, póstafgreiðslumaður frá McNutt,
Sask., á sjúkrahúsi í Yorton, Sask. Foreldrar: Ólafur og Guðrún
Anderson, frumbyggjar í Lögbergs-byggðinni í Saskatchewan,
bæði látin.
13. Anna Þórðardóttir, á sjúkrahúsi í North Bellingham, Wash.
Fædd í Presthúsum í Mýrdal í Vestur-Skaptafellssýslu árið
1862. Foreldrar: Þórður Einarsson og Jódís Eyjólfsdóttir. Flutti
til Vesturheims 1910 og hafði altaf átt heima að Point Roberts,
Wash.
16. Ámljótur Bjömsson Olson, á elliheimihnu “Betel” að Gimli,
Man. Fæddur að Finnstungu í Bólstaðarhlíðarhreppi í Húna-
vatnssýslu 17. jan. 1864. Foreldrar: Björn (yngri) Ólafsson á
Auðólfsstöðum í Langadal og Anna Lilja Jóhannsdóttir frá
Brúnastöðum. Fluttist vestur um haf til Winnipeg 1888, átti
síðan um skeið heima að Mountain, N. Dakota, en eftir það
árum saman að Gimli og loks um langt skeið í Winnipeg. Bóka-
maður og bókasafnari með afbrigðum og gaf fylkisháskólanum
í Manitoba hið mikla íslenzka bókasafn sitt, um 1200 bindi,
er ber nafn hans.