Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Síða 95
ALMANAK
97
31. Lovísa Hardy, kona Hubert James Hardy, að heimili sínu í
Norwood, Man. Foreldrar: Klemens Jónasson frá Bólstaðar-
hlið og Ósk Ingibjörg Jónsdóttir í Selkirk, Man.
SEPTEMBER 1946
3. Guðrún Amelía Júlíus, á berklahælinu í Ninette, Man. Fædd
að Gimli 1. febr. 1905 Foreldrar: Kristján Bjarni og Sigur-
björg Swanson Júlíus.
3. Landnámskonan Kristjana Guðfinna Jóhannson, að heimili sínu
í Glenboro, Man. Fædd 6. apríl 1860 i Kelduhverfi í Norður-
Þingeyjarsýslu. Foreldrar: Kristján Sigurðsson og Kristín
Kristjánsdóttir. Kom vestur um haf með fyrra manni sínum,
Jakob Helgasyni, 1884 og námu land í grennd við Glenboro í
Argylebyggðinni.
4. Jón Arngrímsson landnámsmaður, á heimili sínu í grennd við
Mozart, Sask. Fæddur 31. júlí 1883 i Duluth, Minn. Foreldrar:
Arngrímur Arngrímsson og Þorbjörg Magnúsdóttir, er bjuggu
að Finnstaðaseli í Eiðaþinghá, en fluttu til Ameríku 1882.
7. Sigurjón Sigurðsson Lingholt, fyrrum póstur, á elliheimilinu
“Betel” að Gimli, Man. Fæddur 13. maí 1860 á Daðastöðum
í Núpasveit í Þingeyjarsýslu. Foreldrar: Sigurður Eiríksson og
Ólöf Magnúsdóttir. Kom til Canada 1903 og settist fyrst að í
Argyle-byggð, en bjó síðan lengi í Langruth, Man., og var að
“Betel” 18 síðustu árin.
17. Sveinn Johnson, einn af frumherjum Mountain-byggðar, að
heimili sínu að Mountain, N. Dakota. Skagfirðingur að ætt,
fæddur 5. ágúst 1867. Kom til Vesturheims 1876, fyrst til Nýja
Islands, en nokkru síðar til Mountain og hafði átt þar heima
jafnan siðan. Gengdi mörgum opinberum störfum heima í
héraði.
24. Guðveig Jónsdóttir Egilsson, kona Egils Egilsson, á elliheim-
ilinu “Betel” að Gimli, Man. Fædd 16. maí 1858 á Grímsstöð-
um í Álftaneshreppi í Mýrasýslu. Foreldrar: Jón Jóhannesson
og Þjóðbjörg Sigurðardóttir. Kom til Canada 1889.
29. Anna Ingimundson, ekkja Jóhanns S. Ingimundsson, að heimili
tengdasonar síns og dóttur, Mr. og Mrs. W. G. Finnbogason
í Winnipeg, hnigin að aldri.
OKTÓBER 1946
6. Klemens Jónasson, á heimili sonar síns í Selkirk, Man. Fæddur
1860. Foreldrar: Guðmundur Einarsson Jónasson, trésmiður í
Reykjavík (d. 1868) og Ingibjörg Guðrún Klemensdóttir frá
Bólstaðarhlíð. Kom til Vesturheims 1886 og hafði átt heima í
Selkirk í meir en 50 ár. Forystumaður í lúterskum safaðarmál-
um, bindindis- og þjóðræknismálum, og átti um allmörg ár
sæti í stjórnamefnd Þjóðræknisfélagsins.
11. Jóhann Hjörtur Pálsson, að heimili sínu að Lundar, Man.
Fæddur að Norður-Reykjum í Hálsasveit í Borgarfjarðarsýslu