Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 5
►
Séð auslur Faxa í brimi.
Hjálmar Guðnason
Þegar ég hugsa um tilkomu
..Bravó“ útgerðarinnar, hvernig
nalhið cr tilkomið og hvernig út-
gerðin hefur leiðst, minnist ég
bess þegar við Óli Griins eignuð-
umst okkar fyrsta bát.
Við ætluðum að láta hann
heita „BRAVÓ“, en fulltrúi
bæjarfógetans í Vestmannaeyj-
um lagðist eindregið á móti því.
Hann vildi ekki skrásetja þetta
naln á bátinn, taldi það óncfni,
eða bara vitleysu. Við drógum í
land með nafnið og létum bátinn
heita „FLEYGUR“. Sú útgerð
endaði með því að „FLEYG-
UR“ sökk við Bæjarbryggjuna
hér í gosinu 1973 og seldum við
hann síðan.
I þá daga var hugsun okkar
um nafnið ,,BRAVÓ“ kannski
mest sprell eða spaug. En seinna
komumst við að því, að hér í
Vestmannaeyjum hafði verið til
bátur með þessu nafni, í eigu
Sjólystarmanna, og var mesta
happafleyta. Þess vegna var það
að næsti bátur, sem við eignuð-
umst, var látinn heita
,.BRAVÓ“ og létum við ekki
hrekja okkur frá þeim ásetningi.
Höfum við síðan átt fimm báta
mcð þessu nafni. Útgerðin hefur
smátt og smátt vaxið, og sá
„BRAVÓ“ sem við eigum núna
er 28 feta langur hraðfiskibátur.
Liðlega 7 smálestir að stærð,
búin 180 ha. FORD SABRE
dieselvél, og skilar 20 sjómílna
gangi á klst.
Það sem er sérslakt við
,.BRAVÓ“ útgerðina, er hvorki
stærð, gerð né ganghraði bátsins,
heldur að um páskana 1977
frelsuðumst við eigendurnir. Við
gerðum iðrun, eignuðumst aft-
urhvarf í lífi okkar og lifandi trú
á Frelsarann, Drottin Jesúm
Krist. Tókum við skírn og geng-
um í söfnuð Hvítasunnumanna í
Betel í Vestmannaeyjum. Þar
eignuðumst við yndisleg systkini
og fjölskyldu í Jesú Kristi. Þetta
varð til þess að algjör straurn-
hvörf urðu í lífi okkar, sem og
algjör stefnubreyting á áttavita
útgerðarinnar. Um veturinn
1977 höfðum við keypt 22 feta
langan hraðbát, sem við hugð-
umst nota í skoðunarferðir
kringum Eyjarnar með ferða-
fólk. Svona ferðir höfðum við
lítillega stundað á gamla
„FLEYG" á árunum
1970-1971.
Afturhvarfið breytti allri okk-
ar framtíðarsýn. Gerðum við
okkur grein fyrir því að Drottinn
hafði ákveðinn tilgang með líf
okkar. svo og með útgerðina.
Sáum við þennan tilgang í því að
þjóna Guði, vitna um náð hans
og miskunn, biðja fyrir öllum
ferðum og farþcgum og boða
þcim trúna á Drottin Jesúm
Krist, fyrirgefningu synda og ei-
líft líf í hans nafni.