Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 60
Bæn er leyndardómurinn
Mesta vakning, sem um getur á
síðari helmingi þessararaldar, er í
Suður Kóreu. Fjórðungur
landsmanna er lifandi kristinn -10
milljónir manna-. Þessi öri vöxtur á
við um allar kirkjudeildir í landinu.
Leiðtogar hvítasunnumanna
segja bænina vera leyndardóminn
bak við þennan mikla vöxt. Á
hverjum morgni kemurein milljón
kristinna manna saman til bæna í
landinu. Flestar bænastundirnar
hefjast klukkan Ijögurað morgni og
er beðið fram að vinnutíma.
KS2786
Oswald J. Smith látinn
Kristniboðsfrömuðurinn Oswald
J. Smith er látinn. Flann kom til
íslands og hélt nokkrar samkomur í
Fríkirkjunni 1961. Nokkrar bóka
hans komu út á íslensku, s.s.
„Maðurinn, sem Guð notar“ og
„Landið. sem ég elska mest.“
Oswald J. Smith stofnaði The
Peoples Church í Toronto,
Kanada. Hann hélt umfangsmiklar
kristniboðsráðstefnur og meðan
hann lif'ði gaf kirkja hans yfir 23
milljónir dala (920 milljónir) til
kristniboðsstarfs.
Billy Graham sagði við útför
Smiths: ,,Hann var stórkostlegasta
samsetning af safnaðarhirði,
frumkvöðli kristniboðs, sálma-
skáldi og trúboða, sem um getur á
okkar tímum.“
CT210286
Sígaunar í Stokkhólmi
Nýverið voru haldnar sérstakar
tjaldsamkomur fyrir sígauna í
Stokkhólmi. Tjaldið var yfirfullt á
hverju kvöldi. Að herferðinni
lokinni voru 16 sígaunar skírðir í
Fíladelfiukirkjunni. Margir
frelsuðust og skírðust í Heilögum
anda. Meðal ræðumanna voru Josef
Östby og sígaunaprestarnir Fardi og
Lollo.
KS2386
Fjórir þeirra stærstu
Fjórir af tíu stærstu söfnuðum
heimseru hvítasunnusöfnuðir. Þar
af er söfnuður Paul Yonggi Cho í
Seoul, S-Kóreu, stærri en allir hinir
níu samanlagt. Söfnuðurinn í Seoul
vígði í fyrra nýja kirkjubyggingu,
sem er jafn stór og Péturskirkjan í
Róm. Nýja kirkjan tekur 25 000
manns í sæti.
KS2186
Breytt hlutföl!
Tímaritið Charisma hefur gert
framtíðarspá um hvernig skipting
kristinna manna verðureftir Oórtán
ár. Fram að þessu hafa áhugamenn
um efnið talið að um helmingur
kristinna manna verði j
hvítasunnumenn eða karismatískir
um aldamótin. En nú bendir allt til
þess að þeir verði 75%. Þaraf verði
hluti innan hefðbundinna
hvítasunnukirkna, opnir fyrir
gjöfum Andans og óbundnir af
hefðuni. Slíkar kirkjur eru í örum
vexti í þriðja heiminum.
Hluti tilheyri karismatísku
vakningunni í öðrum kirkju-
deildum og er það einkum á
vesturlöndum sem slíkur fólki
fjölgar ört. Það hefur vaxandi áhrif
og er þegar farið að hafa mjög
mótandi áhril' með kröltugu starfi
innan sinna kirkjudeilda. Slíkir
söfnuðir vaxa örast innan
kirkjudeildanna.
KS2186
Hjálparstarf í
Ungverjalandi
Hvítasunnumenn í Ungverja-
landi eru byrjaðir hjálparstarf við
eiturlyfjaneytcndur í landinu.
Stjórnvöld eru hlynnt þessu starfi
og hala farið viðurkenningarorðum
um starl'hinna kristnu á þessu
sviði. Fyrsta hjálparstöðin var
opnuð í útjaðri Búdapcst í maí í
vor.
KS2586