Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 48
Einar Jóhannes Gíslason
Fyrsti sunnudagaskóli í
Hvítasunnuhreyfingunni
Fyrsti sunnudagaskóli í Hvíta-
sunnuhreyfingunni var stofnað-
ur af Signe og Eric Ericson árið
1928 í Betel, Vestmannaeyjum.
Þeim til aðstoðar voru Inga
Carlson og Kristín Jóna Þor-
steinsdóttir.
Þáttakendur skólans voru
aðallega börn safnaðarmeðlima.
Fljótlega bættust fieiri við.
Árum saman komu börn frá vin-
samlegum heimilum. Sýndu þau
trúfesti og mikla staðfestu. Eric-
son safnaði söngvum og fékk
Sigurbjörn Svcinsson skáld til að
þýða barnasöngva og sálma.
Spilað var á hljóðfæri. Kristín
Jóna las sögur um kristniboðið,
aðallega frá Kongo. Sunnudaga-
skólinn byrjaði kl 14:00 og var
svo síðar færður til kl. 13:00.
Stóð skólinn um eina klukku-
stund. Þetta var mikið þolgæðis-
verk og margt gert fyrir börnin
til aðlöðunar. Árshátíð skólans
var vanalega á annan jóladag,
þar sem safnaðarsysturnar í Bet-
el lögðu sig fram með veglegar
veitingar í kökum og súkkulaði-
drykk og svo ávöxtum. Þá fór
fram verðlaunaafhending fyrir
námfýsi og ástundun. Sumir
krakkar slepptu aldrei sunnu-
degi og sóttu allan veturinn.
Aðrir sóttu mest að haustinu og
fram að jólum, síðan fóraðsókn-
in að réna. Skólanum var slitið i
maí, enda komið vor og börn frá
námi í Barnaskólanum og fjöldi
þeirra fóru liðléttingar í sveit á
Suðurlandi.
Eitt sinn kom sænskur maður,
Carl Anderson frá Skövde.
Dvaldi hann um hríð í Eyjum og
kenndi börnunum mikið og af
krafti. Ég var þá nemandi
sunnudagaskólans fimm ára
gamall, var reyndar allt frá upp-
hafi. Carl Anderson, var talin
mikilhæfur boðberi fagnaðarer-
indisins og fór víða um heims-
byggðina og boðaði Jesúm Krist.
Eitt sinn ræddi hann um
ávextina í Kanaanslandi, þá sem
Jósua og Kaleb komu með til
ísraelsmanna og sýndu gæði
Iandsins. Vitanlega bætti hann
við ávöxtum úr sínu eigin landi,
sem víðast hvar eru ekki étandi í
dag vegna geislavirkni. Ræðu-
maður fór að vorkenna íslandi,
því hérspryttu engirávextir. Svo
ungur sem ég var rétti ég upp
hendina. Það var siður, ef
einhver vildi kveða sér máls. Ég
fékk tækifæri og mótmælti ræðu