Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 39
sjálft til að bera ábyrgð á og
vinna að þessu starfi, og hefur
það gengið með ágætum. Mót í
Skálanum hafa verið haldin
reglulega yfir vetrartímann og
hafa þær helgar þjappað hópn-
um saman og margir hafa mætt
Drottni á nýjan og ferskan hátt á
þeim stundum. Það er margt
sem krel’st athygli og tíma unga
fólksins í dag. Starf á meðal ungu
kynslóðarinnar beinist að því að
undirbúa einstaklinginn sem
allra best til virkrar þáttöku í
Fundur í Skrefinu
kristilegu starf'i og til ábyrgðar
innan safnaðarins sem utan.
Innan æskulýðsstarfsins hefur
starfað kór nú síðastliðinn vetur.
Hann hefur llutt létta og
skemmtilega tónlist víða um
land, nú síðast á 50 ára afmælis-
hátíð Hvítasunnusafnaðarins á
Akureyri. Mikill áhugi hefur
verið innan þessa hóps og bæn
okkar er sú að þessi þáttur starfs-
ins megi verða mörgum til þless-
unar og uppörvunar.
Starf'á meðal fullorðinna, hef-
ur farið vaxandi frá upphafi.
Fyrsta ár starfsins voru samkom-
ur haldnar á fimmtudagskvöld-
um. Eftir heimkomu undirritaðs
hófust síðan samkomur á sunnu-
dögum klukkan 16:30. Um það
bil fjörutíu manna hópur sækir
samkomur reglulega. Þessi
kjarni hefur ’oorið uppi starfið í
Völvufelli. Á fimmtudögum eru
haldnir biblíulestrar, en á
sunnudögum eru almennar sam-
komur. Aðsókn hefur verið jöfn
og heldur vaxandi, og bæn okkar
er sú að þessi staður megi verða
Brciðholtshverfinu til blessunar
um ókomin ár.
Þessi nýjasti brumhnappur
Hvítasunnuhreyfingarinnar hef-
ur verið að opna sig þessi fyrstu
ár starfsins. Framtíð okkar er fal-
in í hendur Guðs og byggist á
virkri þáttöku safnaðarmeðlima.
Það er löngun okkar og þrá að
sjá þennan stað fylltan af fólki,
sem leitar samfélags við frelsara
okkar Jesú Krist. Starfið er enn í
mótun og við leitum til Drottins
að hann fái stýrt þessu verki
samkvæmt sinni fyrirætlun.
Á síðasta ári þurftum við að
leita til Skipulags borgarinnar
varðandi umhverfi safnaðar-
hússins. Þegar viðmælandi okk-
ar lletti uppdrætti yfir svæðið,
fann hann engan skóla á teikn-
ingunni. þess í stað fann hann
áætlun um safnaðarheimili fyrir
cina sókn í Breiðholti. Við gát-
um sagt honum að jafnvel þólt
að þessu hefði verið breytt í
skólahúsnæði þá hefðu málin
snúist þannig að safnaðarheimili
væri komið á staðinn. Og þetta
heimili er komið til að vera.
Drottinn þekki framtíð Hvíta-
sunnukirkjunnar í Völvufelli, og
við störfum í þeirri fullvissu að
þelta sé Hans starf og við vinn-
um í Hans ríki.
Hafliði Kristinsson.
Hajliði Kristinsson for-
stöðumaður