Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 36
Þórhildur B. Jóhannesdóttir og Asmundur Eiríksson.
verið söngstjóri og organisti
safnaðarins í meira en 30 ár.
Söfnuðurinn hefir notið hæfi-
leika hans, sem landskunnugt er.
Áður héldu þar um stjórnvölinn
Erik Martinsson, sænskrar ættar,
Sigurmundur Einarsson, Guð-
rún Jónasdóttir og Guðmunda
Bergmann.
Frá upphafi hafa 1122 með-
limir tilheyrt söfnuðinum í Fíla-
delfíu. Ut frá söfnuðinum dreifð-
ist starfið til Stykkishólms,
Kefiavíkur og í Kirkjulækjarkot
í Rangárþingi, Selfoss og Akra-
nes. Er nú sjálfstæður söfnuður í
Kirkjulækjarkoti, með um 30
meðlimum. Á öllum fyrrgreind-
um stöðum eru safnaðarhús,
nema á Akranesi.
Útgáfa á vegum safnaðarins,
hefur ávallt átt mikið rúm. For-
lagið rekur myndarlega verslun í
Hátúni 2 er Jata heitir. Sölu-
menn fara um landið vítt og
breitt með varning útgáfunnar.
Forstöðumaður hennar er
Guðni Einarsson.
Vegleg 50 ára hátíð var haldin
á Hvítasunnudag 18. maí s.l.
Tvcir af stofnendunum, Þórhild-
ur Jóhannesdóttir og Aldís
Sölvadóttir, voru með í hátíðar-
guðþjónustunni og komu þær
báðar í stól og voru þeim þökk-
uð störf í þágu safnaðarins.
Haldið var upp á afmælið nteð
miklum samkomuhöldum,
Alfrcd Lorenzen frá Kaup-
mannahöfn prédikaði í átta
guðsþjónustum. Auk þcss var
útvarpsguðþjónusta á annan
Hvítasunnudag og skírnarsam-
koma um kvöldið. Þólti öll 50
ára hátíðin fara vel og andlega,
með andlegum réttum á hlað-
borði Guðs orðs, fiult af færum
manni, Alfred Lorcnzen, túlkað
af Ólafi Jóhannssyni.
Merkur áfangi í sögu starfsins
í Fíladelfíu voru kaupin á
Völvufelli I 1 í Breiðholti. Skoð-
ast það sem hrein útvíkkun á
starfi safnaðarins. Þar er for-
stöðumaður Hafiiði Kristinsson
útskrifaður frá Bibl íuskóla í
Springficld, Missouri.
Fíladelfía stóð fyrir stofnun
heimilisins að Hlaðgerðarkoti í
Mosfellssveit. Þar er forstöðu-
maðurÓli Ágústsson.
Um tólf ára skcið álti söfnuð-
urinn ríkisjörðina Kornmúla í
Fljótshlíð og rak þar barnahcim-
ili um 12 ára skeið. Hætt var við
rekstur þar austurfrá, þegar
heimilinu var ncitað um börn til
dvalar af þáverandi valdhöfum í
Borgarstjórn Reykjavíkur.
Þá hefur Systrafélag safnaðar-
ins undir styrkri forystu Hall-
dóru Traustadóttur haslað sér
völl, með myndarlegri aðstöðu í
kaffisal kirkjunnar. Systrafélagið
á miklar þakkir skyldar fyrir
framtak sitt og nær vikulega
kaffisölu fyrir samkomugesti.