Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 42
Ásmundur Eiríksson:
Endur-
minningar
frá
frumdögum
T.B. Barratt hefar veriö
nefndar „postuli Hvílasunnu-
vakningarinnar" á Noröurlönd-
um, hann var frumkvöðull og
gróÖursetti þá spwta sem hreyf-
ingin hefur síöan vaxiö af
Heimsókn hans hingað til lands
var merkisathurður, þótt fáum
hafi verið það Ijóst. Barratt var
trúr kö'llun sinni og i heimsókn
hans voru tveir nýir söfnuöir
stofnaðir, Fíladélfíusöfmiðurinn
í Reykjavík og Filadelfíusöfnuð-
urinn á Akureyri.
Ásmundur heitinn Eiríksson,
forstöðumaður og ritstjóri, fylgdi
T.B. Barratt og Birger Nordhy
um ísland 1936. Hann greinir
frá ferðinni í Aftureldingu 4. tbl.
1936 og segir frekar frá henni í
endurminningum sinum.
„Skyggnst um qfskapabrún", 3.
hindi (Reykjavik 1976). Hér fara
á eftir þcettir úr frásögnum Ás-
mundar, fyrst úr Aftureldingu
1936:
„Eins og getið var um í síðasta
blaði Af'tureldingar, þá kom
Pastor T.B. Barratt frá Osló
liingað til landsins. Hann kom
til Vestmannaeyja 4. maí, með
e.s. Lyra. 1 fylgd með honum var
fiðlusnillingur mikill, Birger
Nordby að nafni. Nordby er
verksmiðjueigandi í Osló, og
meðlimur í hvítasunnusöfnuð-
inum, sem Barratt veitir for-
stöðu.
I Vestmannaeyjum dvöldu
þeir vikutíma, og það er óhætt
að segja, að söfnuðurinn þar
naut mikils af komu þeirra. í
uppfræðslu Barratts mætti mað-
ur fræðimanninum, sem orðinn
er lærisveinn Himnaríkis og ber
nýtt og gamalt fram úr Ijársjóði
sínum. Matt. 13:52. Þegar með-
almennirnir tala, og þeir, sem
tæplega eru það, þá eiga þeir nóg
með að seðja þá, sem textinn
miðast sérstaklega við, þar eð
boðskapurinn verður oft svo
einhliða. Annað hvort er ein-
göngu talað til Guðs barna, og
þá fá hinir vantrúuðu ekkert,
eða það er eingöngu talað til
vantrúaðra, og þá fá Guðs börn
ekkert. En hér hrukku molar svo
yfrið nóg af borðum fram, að
jafnvel þeir söddust, sem ætla
mátti að fjarstir sætu gagnvart
þessu eða hinu umtalsefninu.
Hljóðfærasláttur þeirra bræðr-
anna var prýðilegur að sögn
dómbærra manna. Barratt sat
við orgelið eða píanóið og
Nordby stóð með fiðluna og
þannig stilltu þeir saman ágæti
hljóðfæranna og hæfileika sinna
og tilheyrendur nutu mikils.
Þess á milli lék Nordby á fiðl-
una, eina saman, mörg aðdáan-
lega fögurstykki. Ágætlega dóm-
bærir menn á hljómlist, sem
heyrðu fiðluspil Nordbys, sögðu
oft við mig, að þeir hefðu aldrei
heyrtjafn vel lcikiðá fiðlu.
í för með þeim frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur og
norður um land, bættust Eric
Ericson og undirritaður. í
Reykjavík var viðdvölin rétt um
viku. Samkomur voru ein og
tvær á degi hverjum. Sunnudag-
inn, sem við vorurn í Reykjavík
flutti Barratl erindi, sem hann