Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 15

Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 15
sem þér sýnist. Við erum kölluð til að Guð hafi allan rétt í lífi okkar á jörðu. Til að geta gert Guði til hæfis verður Jesús Kristur að vera frelsari þinn og þú þjónn hans, ekki herra. Daglega komum við saman í Betel, oftast til að biðja. Klukk- an fimm síðdegis frá mánudegi til föstudags er opið hús til að ákalla Drotlin. Við bjóðum fólki að hringja eða koma og Ieggja fram það málefni sem liggur þyngst á þvi í það og það skiptið og við biðjum fyrir málefninu. Islendingar eru feimnir að viður- kenna mikilvægi þess að fela Guði mál sín. En þetta kennum við og Ieggjum þunga áherslu á til að vera biblíuleg - trúa og gera eins og ritað er, (Fil.4:6-7). Það er líka mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir hverskonar bæn- um Guð hefur áhuga á. Það er þeim sem lúta að því að Guð fái ráðið, leiðbeint og stýrt. Margir vilja fá milljónina eða vinning- inn og geta jafnvel sagt: „Jæja, Guð, hjálpaðu mér núna svo ég geti ..." (Jak. 4:3). Bænin er okk- ur gefin til að Guðs vilji verði, (Matt.6:9). Bænin er þess vegna í söfnuði Guðs til að vilji og eðli Jesú Krists sé meðal okkar. Við biðjum til Jesú. Nefnum hans nafn og endum bænina í Jesú nafni. Guð og Jesús eru eitt, þess vegna biðjum við líka til Jesú Krists, (Jóh. 16:15 og Post. 7:59-60). Jesús bað, postularnir báðu, söfnuðurinn bað og við í Betel biðjum - sá Guð, sem gaf okkur Jesúm, fær bænir okkar og veitir okkur allt sem við þurfum til að enn fleiri fái að kynnast frelsaranum Jesú og eignast ei- lífðina með Guði. Brauðsbrotningin er athöfn sem í daglegu tali nefnist altaris- ganga og þessi athöfn er nefnd í Biblíunni kvöldmáltíð eða borð Drottins. í Postulasögunni 2:42 er okkur sagt að lærisveinarnir hafi brotið brauðið. Þess vegna köllum við athöfnina brauðs- brotningu. En hvað hún heitirer ekki aðalatriði heldur hvað hún táknar. Við boðum dauða og upprisu Jesú Krists í athöfninni. Þá viðurkennum við að Jesús dó fyrir okkur í synd, reis frá dauð- um til að við i honum fáum einnig að rísa upp frá dauðum, og að síðustu þá minnumst við þess í brauðsbrotningunni að Jesús á eftir að koma aftur í skýj- um himins til að taka þá sem eru frelsaðir og játa hann sem Son Guðs. Eftir það verður skelfing og hryllingur frá upphafi til enda. Til hvers að velja kvöl, hörmungar og ríki djöfulsins í stað þess að ganga Jesú Kristi á hönd, lála frelsast. Þú veist hvað fylgir. Og hugsaðu þér. Þú sem hefur ekki þorað að láta frelsast og vera sannkristinn bara af hræðslu við mcnnina. En Guð gefur það dýrmætasta sem hann á, bara til að þú fáir að ciga eilíft líf i og fyrir Jesúm Krist. Finnst þér Guð ekki hafa gert vel til þín?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.