Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 26

Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 26
unar fyrir börn og rekstarleyfi fyrir leikskóla. Þegar bciðni um að reisa og reka leikskóla var af- greidd í bæjarstjórn, var þess get- ið í bæjarblaði undir yfirskrift- inni „Börn og bænir“. 27. júní 1982 var komið saman hér á lóðinni og lesið Guðs Orð, beðin bæn og þær byggingarfram- kvæmdir sem í vændum voru og fyrirhuguð starfsemi hér falið í hendur hins almáttka Guðs. 22. desember 1985 var gleði í margra hjörtum. því þá var flutt hingað í Skarðshlíð 20. Fimmtíu ár eru nú Iiðin frá formlegri stofnun Hvítasunnu- safnaðarins hér í bæ. Enn í dag spyr ef til vill einhver: „Hvíta- sunnusöfnuður, hvað er það?“ Það hlýtur að vera eitthvað sem stendur í beinu sambandi við orðið „hvítasunna“, og þá langar ntig til að vísa til Postulasögunn- ar 2. kafla: „Og er nú var kom- inn livílasunnudagurinn, voru þeir allir saman komnirá einum stað, og skyndilega varð gnýr af himni, eins og aðdynjanda sterkviðris og fyllti allt húsið, sem þeir sátu í, og þeim birtust tungur, eins og af eldi vceru, er kvísluðust og settust á einn og sérhvern þeirra, ogþeir urðu all- ir fullir af Heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mœla. “ Þið ættuð gjarnan að lesa þennan stórkostlega kafla í heild. Þar er sagt frá lærisveina- hópi sem var í bæn og hvernig lifandi kraftur Guðs kom yfir þá. Lærisveinarnir voru búnir að vera vitni að krossfestingu Drottins síns Jesú Krists, upp- risu og himnaför og þeir voru þarna í loftstofunni í bæn, vegna þess að Drottinn halði sagt þeim að „bíða“ eftir krafti frá hæðum. En þurf'tu lærisveinarnir ein- hvern sérstakan kraft? Jesús hafði falið lærisveinun- um það verkefni, að boða sam- löndum sínum og öðrum þjóð- um fagnaðarerindið um frið fyrir Jesúm Krist. Þetta var risavaxið verkefni, en ég vil bara aftur vísa til 2. kafla Postulasögunnar og hvernig Guð sjálfur starfaði þann dag í gegnum þjóna sína. En það, sem gerðist hinn fyrsta hvítasunnudag, þegar lærisveinarnir meðtóku Heilag- an anda, var ekki bara bundið við þann cina dag, heldur er það nokkuð, sem hefur verið fyrir alla kristna menn í gegnum allar aldir og cr cnn. En hver er kenn- ing Hvítasunnumanna? ,, Yður her að endurfæöast,“ sagði Jesús við Nikódemus ráðherra forð- um. „Sjá hér er vatn, hvað haml- ar mér að skírast“, spurði hirð- maðurinn Filippus trúboða í Postulasögunni 8. kafia. Filipp- us sagði: „Ef þú trúir af öHu hjarta, er það heimilt,“ - og þeir stigu háðir niður í vatnið, Fil- ippus og hirðmaðurinn, og hann skírði hann. “ Hinn fyrsta hvítasunnudag flutti Pétur þennan boðskap: „Og þér munuð öðlast gjöf Heilags anda, því yður er ætlað fyrirheitið og hörnum vðar og öllum þeim, sem i (jarlægð eru - öllum þeim, sem Drottinn Guð vor kallar til sín." Og Páll segir: „Hvernig er það hræður? Þegar þér komið saman, þá hefur hver sitt, einn sálm, einn kenning, einn opinberun, einn tungutal, einn útlislun. Allt skal miða til uppbyggingar. “ Fyrir hina svonefndu safnað- armyndum er vitað um níu hvítsunnutrúboða sem heim- sóttu Akureyri. Svcinbjörg Jó- hannsdóttir er talin hafa komið fyrst, sennilega 1923-24 en hin voru Signe og Eric Ericsson, túlkur þeirra Kristín Jóna Þor- steinsdóttir, Þórhildur og Ás- mundur Eiríksson, Jónas Jak- obsson. Milda Spánberg og Sig- ntund Jacobsen. Þessir trúboðar tóku hús á leigu kvöld og kvöld til samkomuhalds, einnig var komið saman í tveim heimilum til samvcrustunda, „bænahring- ir“ var það kallað. Þessi heimili voru Lundargata 1 I og Oddeyr- argata 11.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.