Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 37
í fimmtíu ár licfur söfnuður-
inn aðeins haft þrjá forstöðu-
menn. í því er bæði styrkur og
veikleiki. Hvað um það, þá er
ekki veikleiki í grundvelli sal'n-
aðarins, sem er Jesús Kristur.
Undir leiðsögn Jcsú heldur söf'n-
uðurinn inn í nýtt áratugaskeið
fullviss um erindi sitt og hlut-
verk til blessunar fyrir land og
þjóð.
Stiklað hefur verið á stóru í
starfi safnaðarins. Þar blasa við
skin og skúrir. Meðbyr og mót-
byr, sem alltaf má búast við,
þegar um andlcgl starl' er að
ræða. Það hefir verið lífæð safn-
aðarins, samfara bjartri Biblíu-
legri trú og upplifum skírnar
Heilags anda, að í röðum hans
hcfirstaðið úrvals fólk, sem hefir
lekið á sig byrðar og borið þær
möglunarlaust. Mcð slíka
kjölfestu leggur söfnuðurinn út á
sjötla tuginn og byggir á horn-
steinunum í Post. 2.41. „Þeir
hélclu sér stöðuglega við kenning
postulanna, samfélagið, brotn-
ingu brauðsins og bcmirnar."
Það er einn Drottinn, ein trú og
ein skírn.
Einar J.Gíslason. EinarJ. Gíslason og Sigurlina Jóhannsdóttir.
Verslunin PERLON
Dunhagi 18 — Sími 10225