Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 17
Hvaó stendur hæst upp úr
safnaóarstarfinu eftir ykkar
trúargöngu í 60 ár, hvað hefur
lifað lengst?
— Það er auðvitað trúin á
Frelsarann og Orð hans. Maður
finnur að það er rétt að himinn
og jörð líða undir lok en Orð
hans munu aldrei undir lok líða.
Það stendur hæst upp úr að
Drottinn er með.
Menn, hæfileikar, liljóðfæri.
Er það ekki þaó sem hcldur safn-
aðarstarfinu gangandi?
— Nei, það eru bara verkfæri,
en þau eru svo veik að ekki var
nóg að haf'a hæf'ileikaríkt fólk.
Þetta starfbyggist á því að Drott-
inn sé til staðar. Þeir gerðu það
sem þeir gátu en það var ekki
mikið fyrir rnann að sjá.
Hvað hefur breyst í Betel í 65
ár?
— Ekkert. Það eru bara nýtt
fólk og nýir vinir en með akk-
úrat sama anda og í gamla daga.
Fólk vill þjóna Drottni og elska
hann. A þessu crengin breyting.
Nú höfum við samkomur,
bænastundir og Biblíulcstra.
Hefur þetta eitthvað breyst eða
eru dagarnir nákvæmlega eins;
erum við lent í einhverju kerfí?
-- Ekki kerfi, ég óttast ekki
kerfi. En dagarnir eru hinir
sömu. Kerfí Jesú Krists var að
fara á hvíldardeginum í sam-
kunduna eins og hann var van-
ur. Og um Pál postula er sagt að
hann hafi farið eftir venju sinni
að leita að bænastaðnum.
En nú er starfið búið að ganga
í gegnum þykkt og þunnt. Er
hægt aö forðast þessar reynslur?
IJng manneskja sem er að hefja
göngu sína ineð Jesú Kristi
hverju viljið þið ráðleggja henni:
Forða henni frá allskonar óþægi-
legum reynslum.
— Það er ekki hægt það fylgir
bara Guðsdýrkuninni.
Þá er þetta nú ekki aólaðandi?
— Ekki fyrir holdið, en þú
veist hvernig Guðs orð talar. Það
er sama reynslan þar og er í dag.
Og það eru oft trúarreynslur
bæði útbyrðis og innbyrðis, en
þær eru verri ef þær eru ínnbvrð-
is.
En var nauösynlcgt aó fara út
úr þjóðkirkjunni til að stofna
Betelsöfnuóinn. Hefði ekki verið
sterkara að vera fyrir innan og
gera kröfur um að boóskapur
Hvítasunnuhreyfingarinnar yrði
boðaður?
— Við fórum út vegna kenn-
ingarinnar um niðurdýfínguna
og vegna annarra atriða, sem
varða kenningu Biblíunnar uin
bænir, Heilagan anda og að frels-
ast frá synd fyrir blóð Jesú
Krists.
Þegar þið skoðið starfiö í dag,
erum viö þá á réttri leið?
— Meðan við fylgjum Guðs
Orði. Já, það er lykillinn að allri
blessun innan safnaðarins. Þú
veist hver er dyravörðurinn að
Betel, — sem gleypir ekki við
öllu, — það er ofsóknarandinn,
það er dyravörðurinn. Við höf-
um svo ol't reynt það að vegur-
inn er þröngur og þröngt um
okkur í hjörtum mannanna. Til
dæmis þegar fólkið tók niðurdýf-
inguna. Ungur drengur, 13 ára,
vildi fylgja Kristi fyrir 50 árum.
Þegar hann bað um niðurdýf-
ingu. því hann vildi vera með í
Betel, var hann lokaður niðri í
kjallara heima hjá sérallt kvöld-
ið . . .
Viðtal: Gisli J. Óskarsson.
Óskar M. Gíslason og Kristín Jónina
Þorsteinsdóttir.