Afturelding - 01.06.1986, Blaðsíða 8
Kveðja frá
forstöðu -
manninum
í Betel
Söf'nuður er samfelag trúaðra.
Drottinn Jesús er eigandi hans
og ræður þar í stóru sem smáu.
Allir sem vilja eiga hlut í samfé-
lagi trúaðra lúta ekki manna
vilja né skipulagi, heldur Guði
og Guðs vilja.
Okkur er gefin einföld saga í
Biblíunni af manni sent er að
leita Guðs og vill vera öruggur
um eilífðarvelferð sína.
„Hvernig á ég aö öðlasí eilíft lif,“
spyr hann. „Hvaö segir lögmál-
iö, “ spyr Jesús. „E/ska ska/tu
Drottin Guö af öllu hjarta, allri
sáltt og öllum mœlli og náung-
ann eins og sjálfan þigNíu
tíundu trúaðra segjast elska Guð.
Það virðist vera einf'alt og sjálf-
sagt. Flestir segjast trúa á Guð.
Söf'nuðurinn er mikilvægur,
bæði sent mælistika á undirgefni
þína við Orð Guðs og sem gróð-
urreitur svo við megum rækta
upp hin kristilegu viðhorf og
sambönd sem Guð ætlast til af
okkur. Með söfnuðinum er lagt
ok, stýring, á alla. Ok er notað til
að stýra akuryrkjutólum
ákveðna lcið og á ákveðinn hátt.
Guð er eigandi akursins og hann
ætlast til að akurinn gef'i góðan
og mikinn ávöxt. Til að hann
gefi ávöxt þurf'um við að hlýða
Guði, vera í hans taumi.
Söf’nuður eins og Hvítasunnu-
söf’nuðurinn hef'ur hlutverki að
fiytja Guðs Orð til allra. Við
stoppum ekki við einhvern ald-
ur, greind eða þroska, við segj-
um öllum frá vilja Guðs. Oft
reisir fólk sig upp á móti og álas-
ar okkur fyrir öf'gatrú, bókstafs-
trú og þess háttar. Við vitum að
fólki líkarekki alltaf það sem við
segjum, en við semjum ekki um
það sem Guð hel’ur sagt. Ef við
hefðum ekki séð stórkostlegar
breytingar á fólki, heimilum og
öllu sem fylgir mannlífinu, bara
fyrir það að viðkomandi fór að
taka mark á Biblíunni og hlýða,
þá værum við löngu þagnaðir.
En að því að við sjáum árangur,
breyttar manneskjur, börn sem
hætta að f’á bletti vegna fram-
komu lóreldra sinna, glcði í stað
sorgar, líf í stað dauða þá lcyfum
við okkur að þola titlana „öfga“
og ,,ofsa“. og höldum áfram að
boða Guðs vilja hér og nú. Eru
það engin verðmæti að þekkja
lausnina á vandamálunt manns-
ins?
Við sjáum að í náinni framtíð
mun safnaðarstarfsemi breytast
úr litlum söf'nuðum, sem fólk
fælist í starf sem nær eyrum
þjóðarinnar. Utvarp, sjónvarp,
boðveita, þetta eru nokkur orð
sem hljóma nú, ekki aðeins
tískufyrirbæri heldur tíminn í
dag. Þetta er að gerast. Við, sem
trúum því að Jesús Kristur sé
svarið, - hafi lausnina f'rá synd og
boðskapur hans sé þess virði að
berjast fyrir - við eigum að
þjappa okkur í samstillt átak til
björgunar þjóðar okkar. Þú, les-
andi minn, þarft að sjá starf safn-
aðarins sem björgunar- og lausn-
arstarf, scm berst fyrir hamingju
og friði milli rnanna en ekki
stólahlaupi um völd og virðingu.
Okkur vantar þrjátíuþúsund
íslendinga sem vilja og þora að
standa með söfnuði Jesú Krists,
bæði andlega, með því að mæta
til samkomanna, og lofa Jesúm
Krist. Eins að leggja peninga,
vinnu og afia handa sinna í
mesta og besta björgunartæki
sem nokkurntíma hcfur starfað.
Það er lif'andi og Heilagsanda-
fylltur söfnuður, þar sem Guð
ræður.
Viltu vera rneð?
Viltu taka þátt?
Viltu gera landi þínu, byggð
þinni og heimili gagn?
Snorri Oskarsson,
forstöðumaður.