Afturelding - 01.06.1986, Page 38

Afturelding - 01.06.1986, Page 38
flMMDgl Hvítasunnukirkjan Völvufelli 11 Fyrir tæpum þremur árum keypti Fíladelfíusöl'nuðurinn í Reykjavík skóla Ásu Jónsdóttur, sem stendur við Völvufell í Reykjavík. Með kaupum þess- um var uppfylltur margra ára draumur um starf á vegum Flvítasunnuhreyfingarinnar í Breiðholti. Breiðholtið er stór akur og mikill starfsvettvangur. Þar búa lleiri íbúar en í stærstu þéttbýliskjörnum annars staðar á landinu, og lleiri börn og unglingaren víðast þekkist. Með þennan draum að veru- leika var starf hafið haustið 1983. Strax um það leiti var undirrituðum skrifað bónarbréf vestur um haf og okkur hjónum boðið að taka til starfa í Flvíta- sunnukirkjunni, Völvufelli, þeg- ar námi mínu væri lokið. El'tir nokkurn umhugsunarfrest og bæn tókum við þessu boði. En fyrsta veturinn var ábyrgð starfs- ins á höndum þeirra einstakl- inga úrsöfnuðinum í Reykjavík, sem bjuggu í Breiðholtinu. Sunnudagaskóli hófst strax og hefur vegur lians vaxið mjög all- ar götur síðan. Aðstaða til sunnudagaskólahalds er einstak- lega góð í Völvufelli. Húsið var upphaflega byggt sem skóli og nýtast kennslustofur og salur mjög vel til þessarar starfsgrein- ar. Síðastliðinn vetur hafa milli 60 og 80 börn sótt sunnudaga- skólann vikulega. Kennsla fer fram í þremur bekkjardeildum og alls störfuðu átta kennarar og hljófæraleikarar við skólann í vetur. Starf þetta verður aldrei metið til Ijár en við sjáum í börnunum einn mikilvægasta akur til sáningar fagnaðarerind- isins sem þekkist. Ekki aðeins að þau fái að heyra og syngja um Jesú Krist, þau fá að kynnast honum á persónulegan hátt, og þann kunningsskap flytja þau heim á heimilin. Unglingastarf starfsins í Völvufelli og Fíladelfíusafnaðar- ins í Reykjavík hefur farið fram í Völvufelli. Sú nýbreytni var tek- in upp að bjóða unglingum á aldrinum I0 til 15 ára upp á samverur og mót. Þessi hópur kallast „SKREFIÐ" og við það starl'a nokkur ungmenni sem sáu þörf og ákváðu að gera sitt í að uppfylla þá þörf. Þarna koma saman 20 til 30 unglingar og hef- ur þessi starfsemi mælst einkar vel fyrir. Þau fara reglulega aust- ur í Kirkjulækjarkot og halda helgarniót í Skálanum. Nú ný- verið lauk vikulöngu unglinga- móti í Skálanum á vegum „SKREFSINS" og ríkti þar gleði og ánægja. Starf þetta er á meðal unglinga á mótunarskeiði og þörfin því brýn. Við trúum því að kristileg mótun sé sú besta sem boðið er upp á, og þar vilj- um við leggja hönd okkará plóg- inn. Æskulýðsstarf í Völvufelli hefur farið fram með reglu- bundnum hætti allt frá upphafi. Á föstudagskvöldum hafa ung- menni sótt samverur. Reynt er af fremsta megni að fá unga fólkið

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.