Afturelding - 01.06.1986, Síða 55

Afturelding - 01.06.1986, Síða 55
Það sem við tölum um hér, gætum við allt eins nei'nt: BÆN UM VAKNINGU því að svo sannarlega er vakning verk And- ans og luin verður til fyrir bæn. Vakning verður þegar einstakl- ingurinn kemst til afturhvarfs og trúar á Jesú. En höfum við það nógu hugfast að það gerist ekki oftar en raun ber vitni, af því að við biðjum ekki nóg um vakn- ingu..,Þérfáiö ekki, afþviað þér biðjið ekki. Þér biðjiö ox öðiist ekki, að því að þér biðjið illa.“ Jakobsbréf 4:2-3. Mig langar að leggja áherslu á - eins og segir í formála bókar- innar - að það er nauðsynlegt að við eigum bænaranda. Þetta er ekki spurning um fleiri bæna- samkomur. Fátt er meira niður- drepandi en bænasamkomur án bænaranda. Við þurfum að læra að biðja og í rauninni er það ein- ungis Heilagur andi sem getur kennt okkur það. En við þurfum að gera okkur grein fyrir að við þörfnust þess lærdóms. Gerum við það, verður bæn okkar að skóla bænarinnar. Nú langar mig að snúa aftur til Rómverja- bréfsins 8:26-27 og tala aðeins aftur um merkingu þess að Heil- agur andi biður fyrir oss með andvörpum, sem eigi verður orðum að komið. Eitt sinn, er ég var staddur á bænastund, og Andi Guðs var að leiða mig inn í þennan sann- leika, kom svo sterkt til mín að þegar við biðjum, þá „hjálpar Andinn oss i veikleika vorum." Mcð öðrum orðum: Á meðan við finnum veikleika okkar í bæninni, þá kemur Andinn okk- ur til hjálpar. Hér gildir það sama og um öll önnur sannindi, að til að skilja þau þurfum við fyrst að reyna þau. Andinn kem- ur okkur til hjálpar með því að biðja fyrir okkur með andvörp- um, sem eigi verður orðum að komið. Páll talar urn, í þessu samhengi, að öll sköpunin stynji, eigi í fæðingarhríðum. Hann heldur svo áfram og segir að vér sem höfum frumgróða Andans, einnig vér stynjum með sjálfum oss á meðan vér bíðum þess, að Guð gefi oss barnarétt og endurleysi líkami vora. Hér er talað um fæðingarhríðir. Það er enginn fæðing án þjáninga. Það sama gildir unr ríki Guðs. Það fæðist í gegnum þjáningar. Fyrst og fremst sjáum við þetta hjá Jesú. í Jesaja 53 lesum við: „Vegna þeirra hörmunga, er sál hansþoldi, mun Itann sjá Ijós og seðjast." Orðið hörmungar má einnig þýða með þjáningar, eins og er í sumum enskum þýðing- um. Við sjáum þetta greinilegast í þeirri baráttu sem háð var í Getsemane. Hvílík bænabarátta! Hún var slík, að sviti Jesú varð að blóðdropum. Þrátt fyrir að barátta Jesú eigi sér hvergi hlið- stæðu er hún nokkuð sem hann vill miðla með söfnuði sínum. I hvert sinn sem Guðs ríki brýst fram í mönnum og í heiminum, fylgja því fæðingarhríðir í söfn- uði Guðs. Páll segir meðal ann- ars:... börnin min, sem ég að nýju el með harmkvœlum, þang- að til Kristur er myndaður í yður." Galatabréf 4:19. Hvílík barátta sem hann lékk að reyna í bæn fyrir söfnuðunum í Galatíu! Þetta er jafnmikil gjöf Andans og það að spá eða mæla af visku. Þctta er ekkert sem við getum gert af sjálfum okkur. Sængur- kona getur heldur ekki sjálf los- að sig við fæðingarhríðirnar. Hún verður að bíða þeirra og gangast undir þær. Þannig er það með Guðs ríki. Drottinn leitar l'úsra verkamanna sem vilja vera eitt með Andanum, svo að þeir geti leiðst inn í þessa baráttu, þegar Andinn vill. Undanfari allra vakninga er að söfnuður Guðs hefur gengið inn í þessa bænabaráttu í Andanum og árangurinn hefur orðið kröftugt starf Andans. I Kólossubréfi 4:12-13 verður á vegi okkar fyrirbiðjandinn Epafras. Páll segir: „Hann berst jafnan fyirir yður. í bœnum sínum — og liann leggur mikið á sig fyrir yður." Ég trúi því að sérhver sannur fyrirbiðjandi hafi upplifað þetta. En hér er það Guð sem vill gera bænir okkar markvissari og hnitmiðaðri. 1 Guðs orði stendur að við eigum að biðja fyrir öllum mönnum, því að það er vilji Guðs að allir verði hólpnirog komist til þekk- ingar á sannleikanum. I.Tímó- teusarbréf2:l-4. Við getum beðið um vakningu yfir fjölskyIdur okkar, borgir og lönd, ef við erum reiðubúin að kosta því til sem þarf. ímyndaðu þér þegar þú biður, að þá sértu að grafa skurð. Þú grefur skurð- inn frá hásæti Guðs og til þeirrar manneskju eða þess málefnis, sem þú biður fyrir. Hættu ekki, fyrr en skurðurinn er fullgrafinn, svo að þeir sem þú biður fyrir, hljóti blessun. Hvenær vitum við að þessum áfanga er náð? Þegar trúarvissan fyllir hjörtu okkar og við getum byrjað að þakka fyrir bænasvar. Þá höldum við áfram að þakka á sama hátt og við báð- um áður og við erum sannfærð um að svarið er á leiðinni — og það er það líka! „Trúið aö þér hafið öðlast það, og yður mun það veitast." Markús 11:24. í

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.