Fróði - 01.09.1913, Side 55
FRÓÐI
55
veröur og þessi líffæri anna ekki aS rySja út úr líkamanum, þaS safn-
ast fyrir hér og hvar um líkamann og veldur gigtinni.
£>a*8 er því ekki veSriS, sem er orsök'in í gigtinni, heldur allra
handa ólyfjan, rusl og óþverri hér og hvar uni likamann, sem loftbreyt-
ingarnar geta haft áhrif á. Ef menn nú vildu íhuga þaö, aS margs-
konar línsterkjuefni, sem eru illa soSin og illa tuggin, og sætindi sum
tilbúin eins og sykur og sýrópstegundir gerast, og ólga í þörmunum og
mynda gastegundir, sem eru eitraSar bæSi fyrir sál og líkama, þá ætti
mönnum aS verSa þaS Ijóst, aS þeim er nauSsyn á aS hafa góSa reglu á
hvaSa fæSutegundir þeir eta, svo aS þeir geti notiS fullrar heilsu og
fullra krafta til sálar og líkama.
Ef menn vilja komast hjá gigtinni, þá skyldu menn forSast allar
hálfhráar og blautar kökur; forSast meSalagutl og æsandi drykki og
“mineral waters’’. Menn skyldu reyna aS þenja út lungun svo þau
gætu soga'S í sig sem mest af loftinu, þvi þaS hreinsar blóSiS og lífgar
manninn allan. MeSalmaSur þarf aS minsta kosti 2,600 gallónur á dag
af hreinu lofti. Menn skyldu æfa alla vöSva líkamans á hverjmn degi
i því aS dragast sarnan, til þess aS kreista úr þeim ólyfjanina og rusliS.
Menn skyldu reyna aS temja sér göfgandi, lyftandi, fjörgandi og bæt-
andi hugsanir, því þaS ver sálina og djúpvitundina andlegri ólyfjan,
sem er eins skaSleg og hættuleg og likamleg ólyfjan. Menn skyldu
reyna aS halda svitaholunum opnum og skinninu starfandi meS núningi,
sólböSum, köldu lofti og köldu vatni.
Menn geta komiS í veg fyrir ólgu eSa geri í rmsterkjucfnum fæS-
unnar, meS því aS baka kartöflurnar, brúna hrísgrjónin og “corn”-
mjöliS áSur en menn sjóSa þaS, og steikja (“toasta’ý brauSsneiSarnar
vel. Öll línsterkju-fæSa meltist hest af munnvökvanum, en síSur af
vökvum magans. Þess vegna er bcst aS eta þær þurrar, því þá tyggja
mcnn þær hetur og þær blandast meira munnvatninu. Annars hættir
þeim til aS ólga og gerast.
Ávaxta-sýrurnar, svo sem malic-sýra í eplum, citri-sýra í citrónum
og tartari-sýra í stráberjum, cru einkar hollar fyrir meltinguna og
blóSiS. Þær eySileggja gerla, sálga þeim meS öllu og varna ýnisum
óheilla-sýrum aS myndast i maganum og þörmunum. Þær hjálpa
einnig lifrinni aS hreinsa blóSiS.