Jólabókin - 24.12.1920, Page 29

Jólabókin - 24.12.1920, Page 29
27 »Hví lætur þú svona, kona. Þessi bær er nógsamleg- ur fyrir okkur. Hvað hefir þú með kastala að gera?« »Farðu af stað og findu 'fiskinn, hann lætur þig fá það, sem þú biður um«, sagði konan. »Nei, kona«, ansaði maðurinn. »Fiskurinn gaf okkur í byrjun bæinn. Kæmi eg nú aftur, myndi eg reita fisk- inn til reiði«. »Stendur á sama«, ansaði konan. »Fiskurinn getur það sem hann vill, og eg efast ekki um, að hann vilji þetta.. Farðu nú og reyndu«. Fiskimaðurinn lagði af stað í þungu skapi. »Þetta er ekki rétt gert«, sagði hann við sjálfan sig. Sjórinn var kyrr og dökkblár. Fiskimaðurinn leit á hann og raulaði vísuna: „Viö þig eiga vil eg tal, vinur minn í flyörusal, enn þá grætur örlög sín Isabella konan mín“. »Nú, — hvers þarfnast þú?« sagði fiskurinn og rak höfuðið upp úr sjónum. »Blessaður vertu!« andvarpaði sjómaðurinn eymdar- lega. »Konuna mína langar til að eiga heima í stórum steinkastala«. »Farðu heim til þín, maður, þú munt finna hana þar«, sagði fiskurinn. Sjómaðurinn flýtti sér heim. Stóð nú stór steinkastali þar sem bærinn hans var áður. Og konan hans trítlaði niður riðin og mælti: »Komdu með mér, eg ætla að sýna þér, hvað við eigum nú fagran bústað«. Hún tók í hönd manni sínum og leiddi hann við hlið sér inn í kastalann. Gengu þau gegnum marmaragöng, þar voru þjónar margir. Fylgdu þeir hjónunum og opn-

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.