Jólabókin - 24.12.1920, Síða 49

Jólabókin - 24.12.1920, Síða 49
47 allan daginn, og um kvöldið gat hann leikið hlutverk sitt sæmilega. Síðan fóru þeir félagar í leikhúsið og settust í sæti sín í hljóðfærasveitinni; sneri hún baki að stórmenninu, áheyrendunum, og var öllum bannað að líta í þá átt, er þeir sátu. — Spohr hafði með sér spegil, setti hann á nótna- stól sinn og sá þannig um allan salinn að baki sér. Úr því hann var nú kominn í leikhúsið á annað borð, fanst honum hann verða að njóta alls þess, er þar væri að sjá. En brátt varð hann svo gagntekinn af því sem gjörð- ist á leiksviðinu, að hann skeytti ekki um spegilinn og fékk hann einum lærisveinanna.. Þessi leikhús-skemtun varð Spohr hin ánægjulegasta, að öðru leyti en því, að þegar hann kom heim, voru varir hans aumar og stokkbólgnar eftir áreynsluna við hornið. Og þegar kona hans spurði hvernig á því stæði, að hann, á þessum 'stutta tíma sem hann hefði verið að heiman, væri orðinn eins og negri til munnsins, svaraði hann því mjög sakleysislega, að það mundi stafa af því, að hann hefði kyst ungu stúlkurnar í Erfurt svo afar- mikið. — En þegar upp komst hið sanna, varð af því hlátur mikill. X „Adelaide" sem átti að fara í ofninn. Það fer ekki að jafnaði saman, að þær tónsmíðar, sem mesta hylli hljóta hjá almenningi, séu um leið óskabörn höfundanna — þeir hafi sjálfir verið ánægðastir með þær. Miklu oftar er það svo, að einmitt þær tónsmíðarnar, sem skáldin hafa varið mestum tíma til að gjöra sem

x

Jólabókin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.