Jólabókin - 24.12.1920, Síða 34

Jólabókin - 24.12.1920, Síða 34
32 -sem hún hafði verið, stóð nú dómkirkja. Hún var um- girt marmarasúlum. Konan hans sat í hásæti, og kring- um hana brunnu þúsund ljós. Hún var í skrúðfötum, útsaumuðum með gullvír. Og á höfði bar hún gullkórónu. Kringum hana logað iá alls konar kertum. Voru sum eins gild og trjábolir, en önnur eins grönn og fjöðurstafir. Keisarar, konungar og annað stórmenni kraup við fótskör hennar og kysti fald klæða hennar. »Hækkar hagur, kona«, sagði bóndi, »þá ertu orðin páfi«. »Já, eg er orðin páfi«, sagði hún. Hann stóð kyr stundarkorn og virti hana fyrir sér. »Þú getur nú ekki komist hærra í tigninni en að verða páfi, og vona eg að þú verðir nú ánægð«. »Vafasamt er það«, ansaði hún. En þegar kveld var komið, og þau ætluðu að fara að hvíla sig, gat hún ekki sofnað fyrir áhyggjum um það, hvers hún ætti að óska sér næst. Maðurinn hennar sofnaði þegar og svaf vært. Hann var þreyttur eftir erfiði dagsins. Konan fór á fætur fyrir dögun. Gekk hún að glugga og stóð þar, til þess að horfa á uppkomu sólarinnar. »Þetta er fögur sjón«, mælti hún og virti sólarupp- rásina fyrir sér. »0, ef eg hefði mátt til þess að láta sólina rísa!« »Maður, vaknaðu!« kallaði konan. Hún ýtti við manni sínum. »Vaknaðu, maður! — og findu konungssoninn. Mig langar til að verða eins og skaparinn og geta látið sólina rísa«. Manninum varð svo hverft við, að hann datt fram úr rúminu.

x

Jólabókin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.