Jólabókin - 24.12.1920, Page 36

Jólabókin - 24.12.1920, Page 36
Gráa kanínan. Það var Dóra litla, sem sagði mér þessa sögu. V/ið vorum saman á skemtifundi. Þar áttum við öll að leggja eitthvað til, og hlutverk Dóru varð það að bera fram kvæði. Eg hefi aldrei heyrt nokkurt barn, sex ára gam- alt, bera betur fram. Eg hefi nú gleymt kveðskapnum, en efnið man eg. Það var skemtileg saga, bæði fyrir smáa og stóra, og Dóra sagði, að mér væri velkomið að segja hana öllum mínum aldavinuni. Einu sinni var kanína, sem bjó í skógi nokkrum, og skinnið á henni var hvítt, hvítt eins og silfrið, þegar sólin skín á það. Engar af nágranna-kanínunum voru hvítar eins og hún. Þær voru gráar, brúnlitar, svartar eða bröndóttar, og þeim varð jafnan starsýnt á hvítu kanínuna, þegar hún tók sér spretti í tunglsljósinu. Og sífelt ól hún með sér þessa hugsun: »eg er hvít, af því að eg er svo góð«. Þá var það eitt kvöld, þegar hvíta kanínan sat að kvöldverði, að lítil moldvarpa barði að dyrum og mælti: »Æ, blessuð, fyrirgefðu! en svo er mál með vexti, að dálítill álfur hefir dottið ofan í gryfju nálægt gamla eiki- trénu, og gryfjan er full af vatni og ólukkans leðju. Og álfurinn hefir meitt sig, svo að hann getur ekki bjargað

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.