Jólabókin - 24.12.1920, Page 37

Jólabókin - 24.12.1920, Page 37
35 sér upp úr. Eg hefi gert alt mitt ítrasta til þess að reyna að draga hann upp úr. Eg reyndi að ná taki í gullnu há'rlokkunum hans. En handleggirnir á mér eru svo stuttir, að eg náði ekki til. Hann situr enn þá á kafi í leðj- unni. Kom þú nú fljótt og hjálpaðu. Handleggirnir á þér eru langir og sterkir, og þú ert svo dæmalaust góð. Kom þú nú fljótt og legðu þig fram«. »Hamingjan hjálpi mér!«, mælti hvíta kanínan. »Hvernig fór hann að detta ofan í? Þetta er frámunalega leiðin- legt. Hann hefði ekki átt að fara svona nálægt gryfj- unni. Eg er bara hrædd um, að honum hafi verið þetta sjálfum að kenna. Mér skyldi svo sem þykja vænt um að geta hjálpað; en eg get það ekki. Eg verð að hugsa um hvíta skinnið mitt. Eg yrði öll útötuð í leðju«. »Ó, kom þú, blessuð, kom þú fljótt«, hrópaði litla moldvarpan. »Þarna er lækur rétt hjá. Þú getur svo vel þvegið þér þar eftir á«. »Nei, mér rnundi alt af finnast óhreinindin loða við mig«, mælti kanínan. »Eða þá blessað regnið«, hrópaði moldvarpan, »það mun brátt gera þig hvíta aftur«. »Gerðu svo vel að hypja þig burtu«, mælti kanínan. »Vill þá enginn hjálpa ?« æpti moldvarpan. »Vill eng- inn hjálpa álfinum upp úr gryfjunni, sem er full af vatni og óhreinindum?« Alt í einu rak grá kanína höfuðið út um dyrnar hjá sér, og mælti: »Hvað er að? Er nokkur í háska staddur?« »]á, álfur hefir dottið ofan í gryfju nálægt gamla eiki- trénu«, mælti moldvarpan. »Það verður að draga hann upp úr«, mælti gráa kan- ínan. »Komið þið með, eg held eg geti það«.

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.