Jólabókin - 24.12.1920, Side 39

Jólabókin - 24.12.1920, Side 39
Smásögur um tónsnillinga. i. Leoncavallo hleypur á sig. Þaö mun vera sjaldgæft, að tónsnillingum verði það á, að draga úr maklegu lofi um þeirra eigin tónsmíðar. Svo fór þó einu sinni fyrir hinum fræga ítalska tón- snillingi, Ruggiero Leoncavallo. Það varð með þeim hætti, er hér segir: Hann var staddur í borginni Forlí. Heyrði hann þá, að þar ætti að leika óperu hans, »Pagliacci«, sem aflað hafði honum hinnar mestu frægðar. Menn vissu ekki um það alment, að tónskáldið væri þar í borginni. Og hann afréð að fara í leikhúsið í dulargerfi. í leikhúsinu sat við hlið hans ung og fögur stúlka, sem virtist vera mjög hrifin af söngleiknum. Og þegar hún sá að sessunautur hennar tók engan þátt í hinu almenna lófataki og fagnaðarlátum, en sat eins og stein- gervingur, snéri hún sér að honum og spurði: »Hvers vegna klappið þér ekki líka, herra minn? Geðjast yður ekki að leiknum?« Tónskáldinu var skemt — en svaraði: »Nei, síður en svo! Höfundurinn hlýtur að vera við- vaningur — vægast sagt«. »Þá hljótið þér að bera lítið skyn á sönglist,« sagði ungfrúin.

x

Jólabókin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.