Jólabókin - 24.12.1920, Side 48

Jólabókin - 24.12.1920, Side 48
46 einbeittur og lét sér fátt í augum vaxa, og gamansamur mjög. Um hann er sögð þessi saga: Arið 1808 voru ýmsir konungar og aðrir þjóðhöfð- ingjar Norðurálfu saman komnir í Erfurt hjá Napóleon keisara. Hafði Napóleon viðbúnað mikinn til skemtunar hinum tignu gestum og lét undirbúa sýningar ýmsra frakkneskra sorgarleika; voru þar til fengnir beztu leik- endur frá París, þar á meðal hinn heimsfrægi leikari Talma. Þegar Spohr frétti þetta, hugði hann gott til glóðar- innar að fá að sjá þessa leiki og leikendur, einkum Talma; — konungana og keisarana var honum sama um. Hann tók sér því ferð á hendur frá Gotha til Erfurt, ásamt þremur lærisveinum sínum. En þegar til Erfurt kom, fréttu þeir — sér til mikillar gremju — að engir fengju aðgang að leikhúsinu aðrir en þjóðhöfðingjarnir, hirðfólk þeirra og annað úrvals- stórmenni; almenningi yrði ekki leyft að koma þar nærri. Nú vandaðist málið, — en Spohr lét sér hvergi bregða. Hann var nú kominn þangað til að sjá og heyra Talma, og því takmarki skyldi hann ná, hvað sem það kostaði. Hann spurðist fyrir um hljóðfæraleikendurna, þá er spila áttu við leikana, hafði upp á fjórum þeirra og fékk þá til að lofa sér og lærisveinum sínum að spila í leikhús- inu í þeirra stað. Þrír þessara manna voru fiðlu- og cello-leikarar, en sá fjórði hornleikari. Þar var þrautin þyngri, því að hvorki Spohr né lærisveinar hans kunnu að ieika á horn. Nú—jæja. Spohr varð að læra að leika á horn, — um annað úrræði var ekki að velja. Og hann tók með sér hljóðfærið, settist við að æfa sig og blés og blés

x

Jólabókin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.