Jólabókin - 24.12.1920, Síða 60

Jólabókin - 24.12.1920, Síða 60
58 Hann er fæddur í Bonn við Rínarfljót 16. dag des- embermánaðar, árið 1770. Um bernskuár Beethovens vita menn fátt annað en það, að hann var alinn upp í mestu fátækt og var beitt- ur harðrétti miklu af föður sínum, er hugðist að gjöra úr honum annað undrabarnið á borð við W. A. Mozart, því að snemma varð vart óvenjulegra sönglistarhæfi- leika hjá Beethoven. Faðir hans hét Jóhann von Beethoven og var tenór- söngvari við einkakapellu kjörfurstans af Köln. Hann var drykkjumaður mikill og svaðilmenni. Beethoven yngri var varla meira en liðlega þriggja ára, þegar hann tók að kenna honum stafrof hljómlistarinnar. Upphaflega byrj- aði hann kensluna með lipurð, og ætlaði að láta náms- stundirnar líta út sem leikur væri. En brátt fanst honum Ludvig sækjast námið seint og hélt honum þá oft hálfa og heila daga samfleytt við hljóðfærið. Urðu því náms- stundirnar Ludwig oft sannar kvalastundir. Og ekki bar það ósjaldan við á þessum árum, er Joh. v. B. kom heim um miðjar nætur með svallbræðr- um sínum, að hann reif Ludvig litla fram úr rúminu fáklæddan og skipaði honum að setjast við hljóðfærið, til þess að lofa félögum sínum að sjá hvílíkt undrabarn hann væri búinn að gera úr drengnum. En það er skiljanlegt, að með þessari kensluaðferð lærði drengurinn lítið, — og síst var þess að vænta, að hann yrði það, sem faðir hans ætlaðist til: undra- barn, eins og Mozart. En félagi Joh. einn, Pfeiffer að nafni, mjög fær pí- anóleikari, sem séð hafði meðferðina á Ludwig litla og gramist það, hve faðir hans var harður við hann og ósanngjarn, — kendi svo mjög í brjósti um hann, að

x

Jólabókin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.