Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Blaðsíða 150
144
Bækur.
IÐUNN
víða um heirn, kent málið fjolda manna og árum saman
mnnið að söfnun til esperantiskrar orðabókar. Og riu sendir
hann frá sér mikið rit og merkilegt um alpjóðamál.
Bókin er um 350 bls. og skiftist í fjölda kafla. A eftir
inngangsorðum ræðir höf. um hlutverk alþjóðamáls og
tekur til meðferðar spurninguna um það, hvort nokkur
þjóðtungnanna hafi skilyrði til að verða alheimsmál, en
þeirri spurningu svarar hann afdráttarlaust neitandi. Svo
raíðir liann um erfiðleikana við að læra erlendar þjóð-
tungur og hið andlega misrétti, sem af mála-glundroðanum
leiðir. Þá er gerð grein fyrir nokkrum misheppnuðum til-
raunum að gera þjóðtungu eða eitthvert afskræmi hennar
að alþjóðamáli (Anglio, Stofnenska) og fyrir ýmsum til-
búnum málum (Ido, Novial o. f 1.). Einn kaflinn er helgað-
. ur nauðsyn alþjóðlegs hjálparináls, sem kent yrði í öllum
löndum jafnhliða , þjóðtungunum til nota í , samskiftum
þjóða. Þá er nokkuð sagt frá dr. Zamenhof, höfundi Esper-
. antos. Þar á eftir kemur gríðarlangur kafli (á annað hund-
rað bls.) um útbreiðslu Esperantos, og kennir þar margra
grasa. Er þarna sagt frá alls konar félögum og stofnunum,
blöðum, tímaritum og bókum, gerð grein fyrir notkun Es-
perantos í útvarpi, skólum, verzlunarstarfseini, vísindum,
við ferðalög o. fl„ skýrt frá hlutverki Esperantos í þjón-
ustu Þjóðabandalagsins og fleiri alþjóðastofnana og síðan
frá útbreiðslu þess í hinum einstöku löndum á hnettinum,
þar á meðal er sagt all-ítarlega frá brautryðjendum þess
og jiróun hér á landi. i þessum langa kafla er dreginn
saman óhemju fróðleikur um þessi efni, og hlýtur hann að
hafa kostað höf. geysi-mikla vinnu. Ekki er þessi hluti
bókarinnar alls staðar beinlínis skemtilestur; til þess er í
honum of mikið af þurrum staðreyndum og Upptalningum.
En aftur á móti vegur hann þungt til að sannfæra lesand-
ann um, hve öflug og víðtæk esperanto-hreyfingin er þeg-
. ar orðin.
í síðara hluta bókarinnar birtir höf. ummæli fjölda
nafnkunnra manna um alþjóðamál. Svo er í fleiri köflum
gerð grein fyrir byggingu Esperantos og nothæfni sem tal-
mál, viðskiftamáli, vísinda- og bókmenta-mál, og sýnt
fram á, hve miklu rökréttara og auðlærðara það er en