Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1936, Side 31

Kirkjuritið - 01.07.1936, Side 31
Kirkjuritið. Kirkjufundur. 285 Það myndi færa birtu og yl yfir landið alt, skapa iíf og gróður þar, sem áður var „örfoka jörð“. Finnum vér ekki heima í hverri sókn, hve þetta væri nauðsynlegt. Viljum vér ekki liefja samtök um það, að styðja presta og kirkju lands vors i því, að sýna enn á ný og áþreifanlega, að kristindómurinn hefir enn i sér fólginn þann súrdeigskraft, sem sýrir alt deigið. Á almennum kirkjufundi í fyrra töluðum vér um samtök og samvinnu í þessa átt. Enn hefir of lítið verið aðhafst í því að þreifa sig áfram á þessari braut, sem þar var bent á. Og enda þótt fátt sé örugt og ágætt, þá býsl ég þó við, að ferðalög til safn- aðanna geti gert nokkurt gagn, þó það sé heimska að hugsa sér, að þau geti valdið straumhvörfum i einu vetfangi. Fyr mætti nú gagn gera. Ég er viss um, að þau geta gert mikið gagn, ef vei er á haldið. En einn sá mesti vinningur, sem þau í fljótu bragði skapa, er só, að liægt er vegna kynningarinnar að ná sambandi, við liina áhugasömustu krafta hverrar sóknar í þessum málum. Og það þarf að leggja alúð við að lialda því sambandi, sem svo leiðir tii almennra órjúfandi samtaka alls ]>essa áhugafólks um land alt. Það þarf að verða takmark vort. Þannig erum vér sam- einaðir, og stöndum. Án þess erum vér sundraðir og föllum, eins og nú er komið voru kirkjulega starfi. Ég vona, að þessi fundur og liinir árlegu fundir vorir færi oss saman, auki oss vo’n og þrótt í þvi nauðsynlega og þýðingarmikla starfi, að sameina alla kristindómsvini til sóknar og varnar um málefni kirkju vorrar. Um þetta mál urðu miklar umræður. Yar kosin nefnd í það og bar liún fram þessa tillögu: „Almennur kirkjufundur fyrir Sunnlendingafjórðung 1930 telur mjög æskilegt, að kirkjuráðið og' undirbúningsnefnd kirkjufunda hlutist til um, að jafnan sé val á hæfum mönnum til að ferðast um prófastsdæmin kirkju og kristindómi til eflingar. Séu ferðir þessar farnar eftir ósk prófasts eða liéraðsfundar í hlutaðeigandi prófastsdæmi, er sjái um undirbúning þessa starfs i liéraði“. Tillagan var samþykt í einu liljóði. . . Áður en umræður liófust eftir hádegi, flutti Érmdi Stems steinn Sigurðsson rithöfundur frá Hafnarfirði Sigurossonar. erjn(jj um upprisu Jesú Krists. Var það fagurt og prýðilega vandað bæði að efni og orðfæri. Því lauk með bæn. Sálmur var sunginn á undan og eftir. . Næsta mál var kirkjan og útvarpið. Pélur Sig- írKjan og urðsson kennimaður var frummælandi og lagði útvarpið. það til, að stofnað yrði kirkjulegt félag útvarps-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.