Kirkjuritið - 01.07.1936, Qupperneq 49
KirkjuritiS.
Prestastefnan.
303
tilliti. En það seni gerir þessi vanskil á greiðslum til sjóðsins
tilfinnanlegust er, að vegna þeirra verður að taka fyrir lánveit-
ingar úr sjóðnum, því að það liggur í hlutarins eðli, að ekki tjáir
að binda eignir kirkna svo algerlega í lánum, að ekki verði á
hverjum tíma liægt að svara út innieignum kirkna, sem eiga
portionir sínar geymdar í sjóðnum, þegar þær þurfa á því að
halda. En þvi drep ég á þetta, að ég vildi mega skora á presta
og prófasta, að vera mér innan handar með að minna sóknar-
nefndir og reikningshaldára kirkna á skyldur sínar, hvað þetta
snertir; því að hitt er ekki síður tilfinnanlegt, ef ég, vegna van-
skila, neyðist til að taka fyrir allar lánveitingar til kirkna, sem
ég þó hefi orðið að gjöra að mestu leyti það, sem af er þessa
almanaksárs.
.... Á næsta hausti heldur danska kirkjan minningarhátíð í
tilefni 400 ára afmælis siðbótarinnar, og hefir þegar talast svo
til, að ég kæmi þar fram sem fulltrúi íslenzku kirkjunnar.
Að endingu vil ég láta þess getið, að samkvæmt lögunum um
aldurshámark embættismanna hefði biskupsstörfum mínum átt
að vera lokið nú frá 1. næsta mánaðar, þar eð ég nú hefi fylt 70.
árið. En í lok fyrra mánaðar fékk ég svo hljóðandi bréf frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu:
„Hérmeð er yður, liáæruverðugi herra, til vitundar gefið, að
ráðuneytið óskar þess, að þér gegnið biskupsembættinu yfir ís-
landi um óákveðinn tíma, unz öðruvísi kann að verða ákveðið.
Hermann Jónasson“.
Samkvæmt þessum tilmælum stjórnarráðs mun ég með Guðs
hjálp gegna embætti mínu áfram fyrst um sinn og vænti ég þess,
að ég fái áfram að njóta þess trausts og þeirrar velvildar, sem ég
í svo ríkum mæli hefi notið frá því, er ég fyrst tókst þetta embætti
á hendur, og það enda þótt mér liafi ekki fremur en öðrum tek-
ist að vinna verk min svo að öllum likaði.
í sambandi við skýrslugjörðir um messur og
, , S | messuföll bar prófessor Ásmundur Guðmunds-
s ýrslui. Son fram svo hljóðandi tillögu:
„Prestastefnan litur svo á, að jákvæð skýrsla presta úm messur
gjöri óþarfa með öllu hina neikvæðu um messuföll".
Samþykt í einu hljóði.
Formaður barnaheimilisnefndar þjóðkirkjunnar,
séra Guðmundur Einarsson, skýrði frá störfum
nefndarinnar á liðnu starfsári og lagði fram
reikning barnaheimilissjóðsins fyrir árið 1935
ásamt fylgiskjölum. Nefndin hefir gefið barnaheimilinu Sólheim-
Skýrsla
barnaheimil-
isnefndar.