Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 8

Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 8
182 Ásmundúr Guðmundsson: Júní-Júli. hennar, var jafnfraint látinn laus úr fangelsi gegn lof- orði iim það að skifta sér ekki af stjórnmálum. Fyrir- skipanir voru gefnar út um það, að norska kirkjan skyldi njóta fulls frelsis, og væri Nasjonal Samling ó- heimilt að hafa nokkur afskifti af málum hennar. Ekki löngu síðar rjeðst þó National Samling heiftar- leg'a á Berggrav biskup fyrir það, að liann hefði synjað um stuðning kirkjunnar að lierútboði með Norðmönn- um gegn Rússum, og voru allir biskuparnir einhuga uin þá synjun. Berggrav virti þessar árásir ekki svars. Er nógu fróðlegt að lesa umburðarbréf kirkju- og kenslu- málaráðuneytisins út af þessum málum. Þar segir svo meðal annars: „Úrslitabaráttan er báð gegn Bolsjevismanum og alls- lierjar guðleysishreyfingunni. Sérhver maður á nú að skilja til fullnustu, hvað er á seyði. Um það er barist, hvort vér eigum að fá að halda kirkjum vorum, eða þær verða rifnar eða þeim breytt í guðleysissöfn, hvort börn vor eiga að njóta framvegis kristilegs uppeldis og kristi- legrar skólagöngu, bvort vér eigum á komandi timum að varðveita kristna trú, siðgæði og' inenningu í landi voru“. Var skorað á biskupa og' presta að skrifa undir bréf þetta, en sú áskorun kom fyrir Htið. Þeir liöfðu heitið öðrum herra trú og hollustu. Þrír forystumenn þeirra, Berggrav biskup, Hallesby prófessor og Öbren prestur, forseti fríkirkjusafnaðanna, livöttu alla kristna menn í landinu til sameiginlegrar bænagerðar að morgni bænadags þjóðarinnar. Boðslcap þeirra var tekið með fögnuði, og hefir eining kristinna manna i Noregi orðið enn meiri siðan. Bréf þeirra var á þessa leið: „Vér komum oss öll saman um það að sameinast í bæn; hvar sem við erum stödd, kl. 9 að morgni á bæna- degi þjóðarinnar og yfirbótardegi. Vér verðum að vita það og finna, að vér erum um alla ættjörð vora ein sál

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.