Kirkjuritið - 01.06.1942, Síða 20
194
Ásmundur Guðmundsson:
Júní-Júli.
neytið“ 36000 andmælabréf, og liætti það að lokum að
opna þau.
VIII.
Ofsóknin gegn biskupunum og' prestunum er ekki
iiándarnærri jafn grimm.
Þegar allir (sjö) biskupar Noregs sögðu af sér, 24-
febrúar síðastliðinn, reyndi Quislingsstjórnin að koma
sátturn á með því að gefa dómpróföstunum kost á því
að verða biskupar í staðinn. En þá yrðu þeir að sýna
„stjórninni“ löghlýðni og hollustu. Þessar tilraunir allar
strönduðu á einbeitni og festu prestanna, og' biskup-
anna, sem auðvitað urðu áfram forystumenn þeirra.
Hljóta Quislingar því að styðjast við sína eigin menn
í þessum málum. Eiga nú biskupsdæmi landsins að verða
átta. I stað biskupafunda mun Quisling lmgsa sér að
komi einskonar kirkjuráð. Það eiga að skipa: Bisk-
upar landsins, forsætisráðlierra, kirkjumálaráðherra og
skrifstofustjórinn i kirkjumálaráðuneytinu. Kirkjumála-
ráðuneytið boðar til funda, að jafnaði einu sinni á ári,
eða svo oft sexii forsætisráðherra eða kirkjumálaráð-
herra telja þörf á. Þeir skulu vera forseti og varafor-
seti, en Oslóarbiskup á sérfundum biskupanna.
Handtökur biskupa og presta eru enn tiltölulega fáar-
Berggrav biskup var skömmu eftir páskana fluttur úi’
varðhaldinu á heimili hans í þýzkar fangabúðir. Þai’
dvaldist hann þó ekki fulla viku og' var látinn laus 15.
apríl. En nú er hann aftur i haldi. Þrátt fyrir emhættis-
missinn heldur liann áfram að vera fremsti andlegi leið-
togi Noregs. Áhrif hans vaxa við erfiðleikana og þraut-
irnar, sem hann vei’ður að þola, baráttuna þungu, seni
hann verður að lieyja fyrir sannleik og frelsi gegn lög-
leysi og samvizkukúgun. Kristindómur hans er í órofasani-
bandi við ættjai’ðarást hans. Hann er þjóðarhetja og ekki
aðeins fremsti biskup Noregs heldur allx-a Norðui'landa.
Quisling sakar hann um landráð, en telur rétt efd1'
atvikum og hagkvæmt að auðsýna mildi. Er Berggrav