Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 36
JÚIIÍ—Júlí.
Prestastefnan 1942.
Prestastefnan
sett
Hin árlega prestastefna var háð í Reykjavík
dagana 18.—19. júní. Hófst hún með guSsþjón-
Ustu í Dómkirkjunrii kl. 1 e. li. Prédikun flutti
séra Friðrik A. Friðriksson prófastur á Húsavík og lagði út af
OrðUhUm Jak. 1, 14—16 og Gal. 6, 7 n. Á undan prédikun þjón-
aði fyrir altari séra Garðar Þorsteinsson sóknarprestur í Hafn-
urfirði, en hann og séra Friðrik Hallgrímsson dómprófastur
i Reykjavík önnuðust sameiginlega altarisþjónustu eftir pré-
dikun og tóku viðstadda synoduspresta til altaris.
Við setningu prestastefnunnar, sem fram fór í hinni virðulegu
og fögru kapellu Háskólans kl. 3.30 e. h., las biskupinn, herra
Sigurgeir Sigurðsson, Matt. 5, 3 nn og flutti hæn, en prestar
sungu sálma fyrir og eftir. Síðan liófust fundir í sal Guðfræði-
deildar Háskólans og var gengið til dagskrár. Biskupinn stýrði
sjálfur fundinum, svo sem venja er til, en skril'arar voru skip-
aðir þeir séra Friðrik A. Friðriksson og séra Jón Thorarensen.
Prestastefnan var að þessu sinni fjölsóttari en verið hefir um
langt skeið. Voru þar mættir, auk biskupsins, 57 prestar, auk
guðfræðikandidata, guðfræðinema og annara gesta.
Dagskrá synodunnar hófst á því, að biskupinn, herra Sigur-
geir Sigurðsson, ávarpaði prestana og gaf ítarlegt yfirlit um
starf hinnar íslenzku þjóðkirkju á síðastliðnu starfsári
Ávarp biskups og yfirlitsskýrsla hans.
Háttvirtu synodusprestar, kæru vinir og samstarfsmenn!
Það er aftur komið sumar. Um þessar mundir, þegar dag-
arnir eru lengstir og nætur styztar, og bjart er allan sólarhring-
inn yfir öllum vegum, þá Iiittumst vér, kirkjunnar menn á ís-
landi, til þess að ræða áhugamálin og það starf, sem vér höf-
um lielgað líf vort og krafta. Hin bjarta árstíð og boðskapur-
inn, sem vér komum til að ræða um, eiga saman. Hvorttveggja
færir fegurð og birtu yfir lífið, hvorttveggja er þráð inst inni
af öllum þeim, er í þessu landi búa.
Ég býð yður alla velkomna til þessara samfunda. Það er
mér mikil ánægja, að svo margir yðar hafið séð yður fært að