Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 41

Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 41
Kirkjuritið. Prestastefnan. 215 hverfa. Afvopnun allra manna og allra þjóða verður að fara fram. Það verður að koma i veg fyrir hinn mikla mismun í efnahagslegu tilliti — það verður að koma á meira jöfnuði í skiftingu anðæfa jarðarinnar. Auðlindir hennar eru gjafir Guðs i þágu allra manna. Þá fyrst er varanlegur friður, er mann- kyniö hefir eignast skilning á þvi, að það er ein fjölskylda, sem á einn sameiginlegan föður — himneskan föður. Þegar með- vitundin um Guð er fyrir í huga mannsins við daglegu störfin og alt lífið iýtur honum, þá gefur hann mönnunum frið, sem er œðri öllm skilningi ■— sinn frið. Þegar vér nú hefjum þenna fyrsta fund Prestastefnunnar að þessu sinni, þá vil ég, í eins fáum orðum og mér er unt, gjöra nokkura grein fyrir því, sem fram liefir farið, og kirkjuna, líf hennar og starf varðar mest á siðastliðnu synodusári. . Vér minnumst fyrst fallinna samlierja. Á synodusáriiju, sem nú er liðið, lézt foringi íslenzku kirkjunnar um 21 árs skeið, dr. theol Jón Helgason biskup, á 76. aldursári. Fæddur var hann 21. júni 1866, en dánardag hans bar upp á 19. marz s.l. Það er svo skamt síðan æfiatriða hans var itarlega getið i flestum hlöðum landsins og þá sérstaklega riti voru, Kirkju- riti'nu, að þess gjörist ekki nein þörf að rekja þau hér, enda oss, sem þessa samkomu sækjum, kunnugri en öllum öðrum. Hér viljum vér i dag minnast hans í samúð og þakklæti. Hann var oss, auk þess sem hann var biskup vor, allflestum persónu- lega kunnugur, og sumstaðar er þar horft yfir áratug vináttu og náið samstarf. Hann hafði í biskupsdómi sínum veitt 76 guð- fræðikandidötum prestsvígslu. Hann hafði sótt alla presta lands- ins heim, og áður en hann varð biskup, hafði hann kent fjöl- mörgum af núverandi prestum landsins ýmist i Prestaskólanum gamla eða Guðfræðideild Háskóla íslands. Vér höfum fylgst með störfum hans öllum, kennarastörfum, biskupsstörfum og bók- mentastörfum. Fyrir öll þessi störf hans mun nafn lians lifa á íslandi, og hans .verður minst í flokki hinna starfsömustu og merkustu manna’, er á biskupsstóli hafa setið. Útför hans fór fram hér í Reykjavík hinn 27. rnarz 1942, og fylgdist þjóðin öll með i samúð ásamt ástvinum hans. Ég þakka honum i nafni kirkju íslands æfistarfið. Vér minnumst hans með bæn í liuga og blessunaróskum. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir alt og alt“.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.